Bifröst University
Frammistöðuávinningur hjá Alcoa Fjarðaáli : hvaða áhrif hefur hann á frammistöðu, helgun og starfsánægju?
Abstract
dc:description.abstractÍ krefjandi starfsumhverfi skipulagsheilda er fjárhagsleg umbun algeng leið til að hvetja starfsmenn áfram. Þannig vilja skipulagsheildir stuðla að aukinni starfsánægju og helgun starfsmanna sem skilar sér í betri frammistöðu þeirra og þar af leiðandi betri árangri skipulagsheildarinnar. Alcoa Fjarðaál á Reyðarfirði er eitt þeirra fyrirtækja sem er með umbunarkerfi og kallast það frammistöðuávinningur. Tilgangurinn með frammistöðuávinningskerfinu er að stuðla að betri árangri Fjarðaáls þannig að starfsmenn njóti þess í fjárhagslegum ábata og fyrirtækið í betri afkomu. Rannsóknir sýna að ef hönnun slíkra kerfa er góð þá hafi þau jákvæð áhrif á frammistöðu, framleiðni og starfsánægju og góð áhrif á afkomu skipulagsheildarinnar. Í þessari rannsókn er frammistöðuávinningskerfið hjá Fjarðaáli rýnt en markmiðið er að skoða hvaða áhrif frammistöðuávinningur hefur á frammistöðu, teymisvinnu, starfsánægju og helgun starfsmanna. Rannsóknin er tilvikarannsókn og voru tekin hálfopin viðtöl við tólf starfsmenn Fjarðaáls, bæði stjórnendur og almenna starfsmenn og í kjölfarið voru viðtölin þemagreind. Einnig var rýnt í ýmis fyrirliggjandi gögn hjá Fjarðáli um frammistöðuávinninginn og fleira efni honum tengt. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að í einhverjum tilfellum hafi ákveðnir mælikvarðar í frammistöðuávinningi skilað árangri. Hins vegar, þegar á heildina er litið, benda niðurstöður til þess að áhrif frammistöðuávinnings á teymisvinnu og frammistöðu séu takmörkuð og mögulega geti hann leitt til minni starfsánægju og helgunar á meðal starfsmanna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigurður Gunnarsson 1969-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/40557
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/40557