Global ETD Search
Search theses and dissertations gathered from participating repositories worldwide. Every result links back to the library that holds it. No account is needed.
Results
Showing 1 to 20 of 849 for “"Meistaraprófsritgerðir"”.
-
Frestir til að tilkynna um galla í neytenda- og þjónustukaupum : rannsókn á álitum kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa : hvaða söluhlutir falla undir sérregluna um fimm ára frest til að tilkynna um galla samkvæmt 2. mgr. 27. gr. neytendakaupalaga
Þessi ritgerð er á sviði neytendaréttar og er viðfangsefni hennar að skoða fresti sem neytendur hafa til að tilkynna um galla samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003 og lögum um þjónustukaup nr. 42/2000. Markmið ritgerðarinnar er að rannsaka álit kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa og gera …
-
Reglan um hraða málsmeðferð í sakamálaréttarfari : Tafir á meðferð sakamáls hjá lögreglu og ákæruvaldi
Í ritgerðinni verður fjallað um meginregluna um hraða málsmeðferð, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og 1. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu sbr. 62/1994. Reglan er ein af grundvallarreglum réttarfars og hefur tengsl við mörg önnur réttarsvið. Í ritgerðinni …
-
Að ganga í náttúrunni : möguleikar í þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu
Verkefni þetta fjallar um göngur í náttúrunni og sjálfbæra ferðaþjónustu. Markmið þess er að leita leiða til að þetta tvennt geti þrifist saman og styrkst af samvinnunni. Rýnt er bæði í gönguna sjálfa, eðli hennar og einkenni og einnig náttúrugönguna sem birtingarmynd náttúrutengdrar og sjálfbærrar …
-
Control of sexual maturation and growth in Atlantic cod (Gadus morhua) by use of cold cathode light technology
The once abundant stocks of Atlantic cod in the North Atlantic have declined and now the fisheries are either severely restricted or even closed in order to preserve the remaining stocks. As a result, there is a growing interest in cod aquaculture to bridge the gap between decreasing supply and …
-
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum : er lífið yndislegt á Þjóðhátíð?
Þjóðhátíð hefur verið haldin í Herjólfsdal í yfir 100 ár og orðin stór hluti af bæjarlífi Vestmannaeyja. Markmið rannsóknarinnar var að gefa gleggri mynd á þau viðhorf sem bæjarbúar hafa til hátíðarinnar og hvernig standa megi betur að skipulagi hennar. Megindlegum rannsóknaraðferðum var beitt, þar …
-
Skilvirkt samkeppniseftirlit
Í ritgerð þessari verður leitast eftir því að varpa ljósi á það hvaða þýðingu skilvirkni hefur í samkeppniseftirliti. Kannað verður hvort að skilvirkni sé fyrir hendi við framkvæmd íslenskra samkeppnislaga og hvað mætti gera til að auka skilvirkni í samkeppniseftirliti. Til að byrja með verður …
-
Sakarmat í skaðabótamálum
Í þessari ritgerð er fjallað um sakarmat í skaðabótamálum og er ritgerðarefnið að mestu einskorðað við mál sem varða líkamstjón. Tilgangur ritgerðarinnar er að rannsaka með hvaða hætti dómstólar beita svokölluðu ströngu sakarmati, á hvaða sviðum skaðabótaréttarins því sé beitt og hvort breyting …
-
Um ákæruskjöl í sakamálum
Um ákæru er fjallað í XXIV. kafla laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Ákæruskjal í sakamáli þjónar svipuðum tilgangi og stefna í einkamáli og markar upphaf og umfang sakamáls sem sá formlegi grundvöllur sem málshöfðun er byggð á. Í 1. mgr. 152. gr. laga um meðferð sakamála er lýst þeim …
-
Fíkniefnabrot - Úttekt á dómum Hæstaréttar frá 2006 til 2010
Í ritgerð þessari er fjallað um fíkniefnabrot. Meginviðfangsefni ritgerðarinnar fólst í könnun á dómum Hæstaréttar frá tímabilinu 1. janúar 2006 til 3. desember 2010. Auk þess þótti nauðsynlegt að taka einn umfangsmikinn héraðsdóm með í þá könnun. Mikilvægur þáttur ritgerðarinnar var einnig að …
-
Hlutdeild: mörkin á milli hlutdeildar, sbr. 22. gr. hgl., og samverknaðar, sbr. 2. mgr. 70. gr. hgl.
Í þessari ritgerð er fjallað um hugtakið hlutdeild, sbr. 22. gr. hgl. Fjallað er um hvenær háttsemi telst til hlutdeildar og ítarlega greint frá inntaki hugtaksins. Hlutdeildarábyrgð getur komið til skoðunar þegar tveir eða fleiri fremja afbrot í sameiningu. Ef aðili er talinn til hlutdeildarmanns …
-
Réttindi og skyldur aðila og vitna í einkamáli
Í ritgerð þessari verður leitast við að fara yfir og varpa ljósi á helstu réttindi og skyldur sem aðilar og vitni hafa með aðkomu sinni að almennu einkamáli. Lítillega verður fjallað um mun á íslensku sakamálaréttarfari og íslensku einkamálaréttarfari. Fjallað verður um meginreglur …
-
Vinnustaðamenning Krónunnar
Vinnustaðamenning er hluti af öllum vinnustöðum og er bæði sýnileg eða ósýnileg. Meginþættir vinnustaðamenningar eru trú, gildi, tákn, hegðun og viðhorf. Árangur fyrirtækis og frammistaða getur haft áhrif á hversu sterk eða veik vinnustaðamenning fyrirtækisins er. Markmið rannsóknarinnar var að …
-
Tálbeitur - Greiningaraðferð við mat á lögmæti
Efni þessarar lögfræðilegu ritgerðar fjallar um notkun tálbeitu og hvaða aðferðafræði skuli beita við mat á því hvort notkun tálbeitu sé lögmæt. Meginmarkmið hennar er að draga saman ákveðna greiningaraðferð sem nota skuli í íslenskum rétti. Ritgerð þessari er skipt upp í fjóra hluta og sex kafla. …
-
Réttarstaða Seðlabanka Íslands sem kröfuhafa í kjölfar fjármálaáfalls
Í þessari ritgerð er fjallað um réttarstöðu Seðlabanka Íslands sem kröfuhafa í kjölfar fjármálaáfalls. Tilgangur ritgerðarinnar er að kanna réttarstöðu Seðlabankans sem kröfuhafa og hvort staða bankans sé frábrugðin stöðu annarra kröfuhafa gagnvart föllnum fjármálafyrirtækjum. Ritgerðinni er skipt …
-
Láréttir samstarfssamningar í samkeppnisrétti
Tilgangur ritgerðarinnar er að rannsaka lárétta samstarfssamninga í samkeppnisrétti og hvar mörkin liggja á milli lögmætra og ólögmætra upplýsingaskiptasamninga, rannsóknar- og þróunarsamninga, framleiðslusamninga, innkaupasamninga, samninga um markaðsstarf og vörustöðlunarsamninga. Ritgerðin hefst …
-
Bálkakeðjutæknin & stjórnarhættir fyrirtækja : er tækifæri til að styrkja hlutverk hluthafafunda og auka þátttöku hluthafa með bálkakeðjutækninni?
Í þessari ritgerð er fjallað um möguleika á notkun bálkakeðjutækninnar við framkvæmd rafrænna hluthafafunda í skráðum félögum. Varpað er ljósi á atriði sem geta verið talin koma í veg fyrir að hluthafafundur uppfylli að fullu hlutverkið sem honum er ætlað að gegna samkvæmt hlutafélagalögum. Farið …
-
Meginreglan um jafnræði kröfuhafa við gjaldþrotaskipti : hvaða sjónarmið búa að baki reglunni, hverjar eru undantekningarnar og er breytinga þörf í íslenskum rétti?
Markmið ritgerðar þessarar er að gera grein fyrir meginreglunni um jafnræði kröfuhafa við gjaldþrotaskipti. Leitast er við að fjalla með gagnrýnum hætti um þau ákvæði laga um gjaldþrotaskipti sem eru til þess fallin að tryggja jafnræði kröfuhafa sem og þau ákvæði sem fela í sér undantekningar frá …
-
Rannsóknin á bankahruninu og rétturinn til að fella ekki á sig sök
Rétturinn til að fella ekki á sig sök er talinn felast í ákvæðum stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu um réttláta málsmeðferð. Rétturinn á ekki aðeins við í sakamálarannsókn heldur kemur hann einnig til álita við rannsókn mála á stjórnsýslustigi. Mörg þeirra mála, sem koma til …
-
Alþjóðleg skattlagning íþrótta og listamanna
Tilgangur ritgerðarinnar er að gera grein fyrir reglum 17. gr. samningsfyrirmyndar OECD sem fjallar um skattlagningu á tekjur íþrótta- og listamanna sem þeir afla annarstaðar en í sínu heimaríki. Ásamt því er gerð athugun á hvort ákvæði íslensku tekjuskattaslaganna nr. 90/2003 sem gilda um …
-
Skyldur stjórnenda í fjármálafyrirtækjum
Fjármálafyrirtæki og ekki síst störf stjórnenda þeirra hafa verið mikið í umræðunni frá fjármálahruninu árið 2008. Höfundi þótti því ástæða til að skoða hverjar skyldur stjórnenda eru í fjármálafyrirtækjum. Að ýmsu þarf að huga þegar skyldur stjórnenda eru skoðaðar. Fjármálafyrirtæki eru rekin sem …
Page 1 of 43