University of Iceland
Að vinna með eigið hugvit á skapandi hátt : starfendarannsókn smíða- og nýsköpunarkennara
Abstract
dc:description.abstractSkólinn á að koma til móts við öll börn og eiga kennarar að skapa aðstæður þar sem nemendur geta unnið verkefni á frjóan og fjölbreytilegan hátt. Tilgangur rannsóknarinnar er annars vegar að styðja við merkingabært nám þar sem nemendum er gefinn atbeini í námi sínu og þar sem hugvit þeirra fær að njóta sín. Hins vegar að afla mér þekkingar og skilnings sem eflir fagmennsku mína. Ritgerðin byggir á niðurstöðum starfendarannsóknar minnar þar sem ég, sem er smíða- og nýsköpunarkennari í grunnskóla úti á landi, leitaðist við að sjá hvernig mér tekst til við að gefa nemendum tækifæri á að vera skapandi og virkir þátttakendur í eigin námi. Einnig skoða ég framgang samstarfsverkefnis þar sem nemendur vinna með aðilum úr nærsamfélaginu. Ég gerði starfendarannsókn með áherslu á starfstengda sjálfsrýni þar sem ég er rannsakandinn og einnig rannsóknarefnið. Þar horfði ég á sjálfa mig og mína starfshætti á gagnrýninn hátt. Ég skoðaði kennsluferil minn, sem nær yfir 22 ár, safnaði gögnum um yfirstandandi kennslu vorið 2022 og skrásetti atriði og aðstæður sem fengu mig til að endurskoða starf mitt og starfshætti. Meðal gagna eru viðtöl, við samkennara, skólastjóra, nemendur og samstarfsaðila úr nærsamfélaginu. Einnig styðst ég við afturvirk gögn úr kennsluferli mínum sem sýndu mér hvernig starfskenning mín hefur þróast og hvað hefur haft áhrif á hana. Niðurstöður gefa til kynna mikilvægi þess að gefa börnum tækifæri og atbeina til að vinna með eigið hugvit á skapandi hátt. Það að ég styðjist við hugmyndir eflandi kennslufræði og gefi áhugasviði þeirra rými getur valdeflt þá sem einstaklinga og gefið þeim tilgang í náminu. Í rannsókninni mátti einnig sjá vísbendingar um að tenging skóla við nærumhverfið geri námið merkingabærara fyrir nemendur. Rannsóknin hefur tvímælalaust sýnt mér leiðir til að þróa mig sem fagmanneskju sem stuðlar að því að fleiri nemendur fái námstækifæri við hæfi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristín Erla Ingimarsdóttir 1976-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/45897
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/45897