Global ETD Search
Search theses and dissertations gathered from participating repositories worldwide. Every result links back to the library that holds it. No account is needed.
Results
Showing 1 to 8 of 8 for “"Starfendarannsóknir"”.
-
„Þetta er kannski alltaf svona á bak við eyrað“ : kynjajafnréttismenntun elstu barna í sex leikskólum
… fyrir leikskólastarf. Er það í samræmi við starfendarannsóknir og skýrslur sem hafa verið unnar í tengslum við jafnréttiskennslu hér á landi. Þá kom fram að áhrif samfélagsins í formi staðalímynda og áhrif úr menningu samfélagsins séu talsverð innan leikskólanna. Er það í samræmi við þær …
-
„Það sprettur alltaf eitthvað meira, þú sáir einu fræi og ...“ : starfendarannsókn á útisvæði leikskóla
Markmið rannsóknarinnar var að þróast í starfi, nýta eigin styrkleika og hafa áhrif á menningu og samstarfsfólk á eigin vinnustað hvað varðar útiveru leikskólabarna. Leikskólalóðin er hluti af námsumhverfi ungra barna og það er mikilvægt að rannsaka hvernig lóðin er nýtt í leikskólastarfinu. Ég …
-
"Þori ég, get ég, vil ég? Já ég þori, get og vil" : lært af því að hanna og stýra námskeiði fyrir foreldra leikskólabarna
Uppeldi er ekki einkamál foreldra og það er hlutverk samfélagsins að styðja við þá í þessu hlutverki. Uppeldis- og foreldrafræðsla getur verið ein leið samfélagsins til að koma til móts við foreldra. Enn sem komið er hefur starfsvettvangur fyrir uppeldis- og foreldrafræðara ekki verið mótaður hér á …
-
Ég lærði svo mikið án þess að taka eftir því : starfendarannsókn á innleiðingu samvirks náms í kennslu
Rannsókn mín er starfendarannsókn (e. action research) þar sem ég leitast við að varpa ljósi á mína eigin kennsluhætti. Áhersla er lögð á að skoða þær hindranir sem ég hef staðið frammi fyrir á fyrsta kennsluári mínu og hvort ég geti með hjálp nýrrar kennslunálgunar yfirstigið þessar hindranir. …
-
Myndlist sem mál : tilraun með námskrárútfærslu
Mikið hefur verið fjallað um skapandi vinnubrögð og að kennarar hafi áhuga á að tileinka sér þau en þrátt fyrir það hefur það ekki endilega endurspeglast í daglegu skólastarfi. Álag á kennara er mikið en finna þarf leið til að hvetja nemendur og vekja áhuga þeirra. Meistaraverkefni þetta fjallar um …
-
Byrjendalæsi sem brú milli íslensks táknmáls og íslensks ritmáls : reynsla döff kennara
Ritgerðin er starfendarannsókn á Byrjendalæsi fyrir döff nemendur, þar sem byggð er brú milli tungumálanna, íslensks táknmáls og íslensk ritmáls. Meistaraverkefninu er skilað á táknmáli, á myndbandi, í stað ritmáls.
-
Að vinna með eigið hugvit á skapandi hátt : starfendarannsókn smíða- og nýsköpunarkennara
Skólinn á að koma til móts við öll börn og eiga kennarar að skapa aðstæður þar sem nemendur geta unnið verkefni á frjóan og fjölbreytilegan hátt. Tilgangur rannsóknarinnar er annars vegar að styðja við merkingabært nám þar sem nemendum er gefinn atbeini í námi sínu og þar sem hugvit þeirra fær að …
-
Leiðin til Klapplands : hönnun og prófun námspilsins Klappland – pólítískur ómöguleikur
Þessi ritgerð fjallar um þróun á námspilinu Klapplandi og prófun á því í spilun í framhaldsskólum. Klappland er hlutverka- og hermileikur þar sem líkt er eftir kosningum og stjórnarmyndun í ímynduðu landi. Í ritgerðinni er fjallað um fræðilegar kenningar um námspil og uppbyggingu þeirra. Tekin eru …