University of Iceland
Fyrstu skrefin í grunnskóla : þáttaskil í lífi barna á mótum leik- og grunnskóla
Abstract
dc:description.abstractÞessi ritgerð er lokaverkefni mitt til B.Ed. prófs í grunnskólakennslu yngri barna. Markmið verkefnisins er að skoða rannsóknir sem gerðar hafa verið á þáttaskilum í lífi barna á mótum leik- og grunnskóla og hvaða aðferðir hægt er að nýta til þess að mynda samfellu í námi barna. Kenningar fræðimannanna Dewey, Vygotsky og Bronfenbrenner um nám og þroska barna eru skoðaðar og hvaða áhrif þær hafa á skólaumhverfið eins og það er í dag. Megin markmið ritgerðarinnar er að skoða hvernig grunnskólakennarar geta tekið á móti börnum úr leikskólanum á farsælan hátt svo upplifun þeirra í þáttaskilum verði sem best. Rannsóknir hafa sýnt fram á að líðan barna í þáttaskilum á mótum leik-og grunnskóla getur haft gríðarlega mikil áhrif líðan þeirra og námsárangur í framtíðinni. Það er því gríðarlega mikilvægt að grunnskólakennarar séu meðvitaðir um líðan barna, reynslu þeirra og þekkingu við upphaf grunnskólans. Ritgerðin er skrifuð til þess að varpa ljósi á mikilvægi þess að taka vel á móti börnum sem eru að byrja í grunnskóla, auka meðvitund um líðan þeirra og mikilvægi þess að þau upplifi sig sem hluta af skólasamfélaginu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hrönn Erludóttir 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/45610
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/45610