University of Iceland
Sönglög til málörvunar í íslensku : með börnum af pólskum uppruna
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er lagður fræðilegur grunnur að námsefni með tónlist, sem er samið sérstaklega fyrir leikskólabörn hér á landi sem eiga pólsku að móðurmáli. Námsefnið hefur það meginmarkmið að styrkja orðaforða og tjáningarfærni barnanna í íslensku. Pólska og íslenska eru ólík tungumál hvað hljóðfræði, orðaáherslur, beygingar sagna og fallbeygingu, kyn orða, setningaskipan og orðaforða. Því er tilgangur námsefnisins að vinna markvisst með það sem er ólíkt í tungumálunum. Námsefnið samanstendur af fimm lögum og grundvallast í fyrsta lagi af mikilvægi orðaforða fyrir máltöku barna. Við val á orðum var tekið mið af orðtíðniorðabókinni Tíðni orða í tali barna. Í öðru lagi er námsefnið byggt á því sem er hljóð- og málfræðilega ólíkt milli pólsku og íslensku. Sérstök áhersla er lögð á ólík málhljóð, orð sem hafa ekki sama kyn, orðaáherslur og framburð orða. Einn hluti námsefnisins grundvallast á sjónrænni uppsetningu og fylgja myndir og myndband með hverju lagi. Myndirnar eru hugsaðar fyrir kennara til að setja lagið upp á sjónrænan máta til að auka líkur á að börnin tileinki sér orðaforða lagsins. Myndböndin er ætluð fjölskyldum barnanna, þannig að börnin hafi möguleika á að efla íslenskufærni sína líka utan leikskólans. Námsefnið verður birt á heimasíðunni krakkakunst.com og verður aðgengilegt öllum án endurgjalds.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 9Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/45519
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/45519