Back to results

University of Iceland

Svörum saman : spurningaspil fyrir nemendur á yngsta stigi grunnskóla

Abstract

dc:description.abstract

Lokaverkefni þetta er þríþætt. Fyrst var farið í viðtalsrannsókn á viðhorfi kennara til borðspila í kennslu á yngsta stigi grunnskóla. Á þeim grunni var þróað og búið til spurningaspil fyrir yngstu nemendur grunnskóla og að lokum var spilið prófað með nemendum. Spilinu í frumútgáfu fylgir greinargerð þar sem þessum verkum er lýst, þau sett í fræðilegt samhengi og greint frá aðferð og helstu niðurstöðum. Markmið með verkefninu var að búa til spurningaspil sem nemendur á yngsta stigi grunnskóla geta notað. Rannsóknir sýna að fjölbreyttar kennsluaðferðir byggðar á náms- og kennslugögnum á borð við spil geta fært nemendum mikinn ávinning. Spil geta kveikt áhuga, aukið orðaforða og eflt málþroska barna, styrkt félagsleg tengsl meðal nemenda og aukið samvinnu þeirra í milli. Höfundur hafði reynslu af notkun spurningaleikja með ungum nemendum og vildi spreyta sig á að búa til og prófa spurningaspil til að nota í skólastarfi. Tekin voru rannsóknarviðtöl við þrjá kennara sem nota mikið spil í kennslu og með niðurstöður úr þeim viðtölum í huga var hafist handa við gerð spilsins. Leitað var aðstoðar nemenda í 3. bekk í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu við val á efni í spurningarnar. Spilið var hannað og samdar voru 1.250 spurningar. Eins og ráða má af heiti spilsins og spilareglum er lögð áhersla á að keppendur myndi hópa og hjálpist að við leit að réttum svörum. Spilið var að lokum prófað með nemendunum fyrrnefndu í 3. bekk. Nemendurnir tóku því virkan þátt í þróun spilsins á öllum stigum þróunarferlisins, með því að benda á eða leggja til áhugavert efni og gera við spurningar og hönnun athugasemdir sem tekið var tillit til við breytingar á spilinu. Niðurstöður úr viðtölum gáfu til kynna að kennarar teldu notkun spila í kennslu góða leið til að koma til móts við nemendur, vekja áhuga og efla félagsþroska. Ennfremur að mörg spil væru til þess fallin að auka talnaskilning, efla samskiptahæfni og bjóða upp á mikla málörvun. Við prófun á spilinu komu svo ýmsir þeir hlutir í ljós sem hafði verið rætt um í viðtölum við kennarana. Þar má nefna að nemendur sem eru ekki sterkir í lestri létu ljós sitt skína við spilamennskuna. Ánægja nemenda með spilið var mikil og almenn. Ljóst er að kennsluaðferðir sem byggja á notkun leikja og spila geta verið árangursríkar og stutt vel við nám. Þetta má ráða af fræðilegum skrifum um efnið, viðtölum við kennara í þessu verkefni og þátttöku ungra nemenda í verkefninu. Spil geta vakið áhuga nemenda og þá kann að skipta máli að þeir gera sér oft ekki grein fyrir hve margt þeir eru að læra af spilinu og leiknum sem því fylgir. Spurningaspilið Svörum saman er eina spurningaspilið sem höfundi er kunnugt um að hannað hafi verið sérstaklega með nemendur á yngsta stigi í grunnskóla í huga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elsa A Serrenho Valdemarsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36699
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36699

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elsa A Serrenho Valdemarsdóttir 1985-. Svörum saman : spurningaspil fyrir nemendur á yngsta stigi grunnskóla. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36699