Abstract
dc:description.abstractFasteignamarkaðurinn á Íslandi hefur síðustu ár einkennst af verðlagshækkunum og framboðsskorti af fasteignum. Orsök þessa vanda má að hluta til rekja til þeirra efnahagslega afgerandi þátta sem voru greinilegir á síðustu árum. Ef litið er á tímabilið 2006-2023 má sjá efnahagshrun, heimsfaraldur, hækkandi verðbólgu og meginvaxtabreytingar. Hafa þeir þættir tekið þátt í að móta fasteignamarkað Íslands á síðustu árum. Í dag er þróunin sú að ungt fólk býr lengur í foreldrahúsum og hefur meðalaldur fyrstu kaupenda farið hækkandi. Ástæður þess eru að ungt fólk sækir nám í auknum mæli, neyslumynstur þeirra hafa tekið breytingum með komu samfélagsmiðla og laun þeirra hafa ekki hækkað í takt við fasteignaverð. Einnig hafa skilyrði sem fyrstu kaupendur þurfa að uppfylla verið hert á tímabilinu, sem orsakað hefur að erfiðara sé að komast í gegnum greiðslumat fyrir húsnæðisláni. Ritgerð þessi mun varpa ljósi á þróun fasteignamarkaðarins yfir tímabilið 2006-2023 samhliða stöðu fyrstu kaupenda þegar kemur að greiðleika inn á markaðinn að hverju sinni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Arndís Lára Kristinsdóttir 2002-
- Guðfinna Ósk Eiríksdóttir 2002-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/47635
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/47635