Back to results

Reykjavík University

Er fjarvinna komin til að vera? : hefur COVID-19 haft áhrif á samskiptaform og fyrirtækjamenningu í viðskiptaheiminum, sem eru líklega til að verða varanleg?

Abstract

dc:description.abstract

Vegna alvarleika og útbreiðslu sjúkdómsins Covid-19 neyddist fólk til að vinna í fjarvinnu í ríkari mæli. Mikilvægt er að rannsaka áhrif þess á starfsemi fyrirtækja, sem og upplifanir starfsfólks þar sem það hefur leitt til breytinga á vinnuumhverfi. Markmið rannsóknarinnar var að rannsaka áhrif Covid-19 faraldursins á breytta starfsemi og helstu áskoranir þeirra fyrirtækja sem tóku þátt. Persónuaðlögunarkenningin (e. Person-Environment fit eða P-E fit) var notuð til stuðnings við gerð rannsóknarinnar. Rannsóknin leitast við að svara rannsóknarspurningunni “Hefur COVID-19 haft áhrif á samskiptaform og fyrirtækjamenningu í viðskiptaheiminum, sem eru líklega til að verða varanleg?” Í fræðilega kafla rannsóknarinnar er fjallað um viðeigandi hugtök, kenningar og fyrrum rannsóknir um fjarvinnu. Framkvæmd var eigindleg rannsókn í formi djúpviðtala við mannauðstjórnendur fjögurra íslenskra fyrirtækja. Niðurstöður benda til þess að fjarvinna verði varanleg í nánustu framtíð, líklegast blanda af fjarvinnu og staðarvinnu. Fjarvinna hefur bæði jákvæð og neikvæð áhrif á einstaklinga og fyrirtæki. Niðurstöður sýna nauðsyn breyttra stjórnunarhátta fyrirtækja, þar sem mikilvægi mannauðsstjóra skipa mikilvægari sess en áður. Ef fyrirtæki gerir kröfu um fjarvinnu, getur slíkt haft áhrif á nýráðningar, einkum fyrir fólk sem ekki hefur aðstöðu til þess. Takmarkanir rannsóknarinnar og hugmyndir af framtíðarrannsóknum voru einnig teknar fyrir. Lykilorð: Covid-19, fjarvinna, fjarfundir, ferðalög, fyrirtækjamenning, stjórnunarhættir, mannauðsstjórnun, breytingastjórnun, umhverfi, Ísland

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Iðunn Getz Jóhannsdóttir 1997-
  • Ragney Lind Siggeirsdóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38823
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38823

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Iðunn Getz Jóhannsdóttir 1997-; Ragney Lind Siggeirsdóttir 1996-. Er fjarvinna komin til að vera? : hefur COVID-19 haft áhrif á samskiptaform og fyrirtækjamenningu í viðskiptaheiminum, sem eru líklega til að verða varanleg?. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38823