Back to results

Bifröst University

Áhrif tónlistar á nám og líðan nemenda

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn er sjónum beint að því hvernig unglingar nýta tónlist í námi og hvaða hlutverki hún gegnir í þeirra námsferli. Rannsóknin byggir á blandaðri aðferðafræði þar sem sameinaðar voru eigindlegar og megindlegar aðferðir. Lögð var fyrir stutt spurningakönnun meðal nemenda í unglingadeild Heiðarskóla í Hvalfirði til að afla bakgrunnsupplýsinga um tónlistarnotkun í námi. Að auki voru tekin viðtöl við bæði nemendur og kennara til að fá dýpri innsýn í viðhorf og reynslu þeirra af tónlist í skólastarfi. Heiðarskóli var valinn sem rannsóknarvettvangur vegna aðgengis og samvinnuvilja, en einnig vegna þess að hann endurspeglar íslenskan grunnskóla í minni samfélagseiningu þar sem skapandi starf og einstaklingsmiðað nám fá aukið vægi. Markmið rannsóknarinnar var að greina upplifun unglinga af tónlistarnotkun í tengslum við nám og sköpun, og meta hvort og hvernig tónlist getur stutt við einbeitingu, áhuga og sjálfstæða vinnu. Fræðilegur rammi rannsóknarinnar byggir á kenningum um flæði (Flow), sjálfsákvörðunarkenningu (Self-Determination Theory) og hugræna álagskenningu (Cognitive Load Theory). Niðurstöðurnar benda til þess að tónlist sé fyrir marga mikilvægt stuðningstæki í námi, þó áhrif hennar séu breytileg eftir aðstæðum, persónulegum þáttum og viðhorfum kennara. Rannsóknin varpar ljósi á hvernig tónlist getur haft áhrif á námsreynslu ungs fólks í nútímasamfélagi þar sem fjölbreyttar kröfur, tækninotkun og stöðugar truflanir hafa áhrif á einbeitingu og líðan. Rannsóknin gefur þannig dýpri skilning á hlutverki tónlistar í skólastarfi og getur nýst kennurum, foreldrum og fræðasamfélaginu við að þróa aðferðir sem stuðla að aukinni vellíðan, hvatningu og einbeitingu nemenda í námi. Lykilorð: Tónlist í námi; einbeiting; líðan nemenda; blönduð aðferðafræði; unglingar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Máni Björgvinsson 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52155
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52155

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Máni Björgvinsson 1985-. Áhrif tónlistar á nám og líðan nemenda. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52155