Back to results

Bifröst University

Velkomin til starfa - Forysta og væntingar Z-kynslóðarinnar á íslenskum vinnumarkaði

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort og hvernig stjórnendur þurfi að aðlaga forystuhætti sína að væntingum Z kynslóðarinnar á íslenskum vinnumarkaði og á hvaða sviðum slík aðlögun birtist. Rannsóknin byggir á átta eigindlegum djúpviðtölum við stjórnendur sem hafa reynslu af því að leiða bæði ungt og reyndara starfsfólk. Leitast var við að greina hvernig breytingar í samskiptavenjum, hvatningu, ábyrgð og þörf fyrir skýrari ramma koma fram í daglegu starfi stjórnenda og hvernig þessar lýsingar tengjast kenningum um nútímaforystu. Niðurstöðurnar sýna að Z kynslóðin kemur til starfa með skýrar væntingar um regluleg samskipti, nákvæmar leiðbeiningar, sýnilegan tilgang og aukið aðgengi stjórnenda, á meðan faglegar kröfur um ábyrgð, vinnuferla og áreiðanleika haldast óbreyttar milli aldurshópa. Þetta leiðir til gagnkvæmrar aðlögunar þar sem stjórnendur þurfa að miðla væntingum með skýrari hætti, en ungt starfsfólk þarf að tileinka sér þær faglegu starfsvenjur sem starfið krefst. Niðurstöðurnar samrýmast aðstæðubundinni forystu, kenningum um samskiptatengsl og umbreytingaforystu, sem allar leggja áherslu á sveigjanleika, skýrleika og mikilvægi þess að leiðtogar aðlagi nálgun sína að reynslu og þörfum fylgjenda. Rannsóknin gefur innsýn í hvernig árangursrík forysta á fjölkynslóðlegum vinnustöðum byggist á skýrum boðleiðum, fyrirsjáanlegum vinnuferlum og sveigjanlegri samskiptanálgun sem mætir ólíkum væntingum án þess að draga úr faglegum viðmiðum. Jafnframt kemur fram að styrkleikar mismunandi kynslóða, svo sem tæknifærni og fersk sýn Z kynslóðarinnar annars vegar og fagleg festa og reynsla eldri kynslóða hins vegar, geta skapað verulegt virði þegar þeir eru nýttir markvisst í framkvæmd forystu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Viktoría Arnardóttir 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52117
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52117

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Viktoría Arnardóttir 1995-. Velkomin til starfa - Forysta og væntingar Z-kynslóðarinnar á íslenskum vinnumarkaði. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52117