Back to results

Bifröst University

Áhrif skóla án aðgreiningar á vinnuumhverfi og líðan kennara

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar eigindlegu rannsóknar snýr að því að skoða helstu álags og streituvalda í kennarastarfinu og áhrif skóla án aðgreiningar á kennarastarfið. Tilgangur er líka að skoða hvaða bjargráðum kennarar búa yfir til þess að takast á við áskoranir skóla án aðgreiningar. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafræði og var unnin þemagreining á viðtölum við fimmtán grunnskólakennara úr ýmsum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á upplifun kennara af því hvaða þættir starfsins valda þeim helst álagi og streitu og hvaða áhrif kennarar telja að skóli án aðgreiningar hafi á kennarastarfið og hvaða bjargir eða úrræði standa þeim til boða. Með því er markmiðið að vekja kennara, skólastjórnendur og fræðsluyfirvöld til umhugsunar um þessi málefni með það fyrir augum að bæta starfsumhverfi og líðan kennara í starfi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að helstu álagsþættir sem umsjónakennarar í grunnskólum upplifa eru fjölbreyttir nemendahópar, erfið agamál og krefjandi foreldrasamskipti. Skóli án aðgreiningar hefur talsverð áhrif á kennarastarfið og eykur það álag sem er á kennurum. Kennarar upplifa að þeir fái ekki nægan stuðning og að meira fjármagn þurfi inn í skólana til að geta gert betur í þessum málum. Lykilhugtök: Vellíðan í starfi, streita, kulnun, vinnuumhverfi, grunnskólakennari, bjargráð, skóli án aðgreiningar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Laufey Ósk Þórðardóttir 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 15

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/51653
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/51653

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Laufey Ósk Þórðardóttir 1973-. Áhrif skóla án aðgreiningar á vinnuumhverfi og líðan kennara. 2025. https://hdl.handle.net/1946/51653