Bifröst University
Má greina hugmyndafræði um þjónandi forystu meðal starfsmanna fyrirmyndarfyrirtækja á Íslandi?
Abstract
dc:description.abstractMeð aukinni áherslu á vellíðan og hamingju í starfi þurfa stjórnendur að takast á við nýjar áskoranir í starfsumhverfi sínu til þess að ná árangri. Í hröðum heimi taka vinnustaðir örum breytingum og því er mikilvægt fyrir leiðtoga að hafa hæfni til þess að uppfæra eigin aðferðir. Starfsmenn eru helstu verðmæti fyrirtækja og því mikilvægt að hlúa vel að þeim. Þjónandi forysta er hugmyndafræði sem grundvallast á því að leiðtoginn þjónar fyrst og fremst öðrum og þróar nýja leiðtoga með þessari hugsjón. Samvinna og skýr markmið eru meðal lykilatriða þjónandi leiðtoga. Markmið þessa verkefnis er að meta hvort greina megi hugmyndafræðina um þjónandi forystu meðal stjórnenda í framúrskarandi fyrirtækjum á Íslandi. Árlega sendir stéttarfélagið VR út könnun og veitir þeim fyrirtækjum sem þykja framúrskarandi viðurkenningu. Höfundur lagði Servant Leadership Survey spurningalistann(SLS) fyrir 123 starfsmenn sem svöruðu spurningum er sneru að stjórnendum þeirra og upplifun sinni af stjórnarháttum þeirra. Helstu niðurstöður spurningalistans eru birtar og benda þær til þess að hugmyndafræðin um þjónandi forystu sé greinanleg í stjórnunarháttum á meðal stjórnenda fyrirtækjanna tveggja. Höfundur ályktar að tækifæri til þróunar sé fyrir stjórnendur fyrirtækjanna til þess að kynna sér frekar hugmyndafræðina um þjónandi forystu og nýta í starfi sínu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Drífa K. Guðmundsdóttir Blöndal 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/43457
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/43457