Bifröst University
Samskipti í grunnskólum : "Að vera þessi fyrirmynd fyrir krakkana út í lífið..."
Abstract
dc:description.abstractSamskipti eru lykilþáttur í lífi hvers manns og í nútímasamfélagi eru gerðar æ meiri kröfur um samskiptahæfni einstaklinga. Mikilvægt er því að þjálfa með börnum og ungmennum jákvæð og heilbrigð samskipti og gegnir starfsfólk grunnskóla stóru hlutverki þar í því að styrkja þau og vera þeim góðar fyrirmyndir í leik og starfi. Markmið þessarar rannsóknar var að fá innsýn í reynslu bæði stjórnenda og kennara hvað varðar áherslur í samskiptum í grunnskólum hér á landi. Enn fremur að skoða hvort áherslurnar endurspegli hugmyndafræði þjónandi forystu. Rannsóknin var eigindleg og viðtöl voru tekin við níu stjórnendur og kennara í grunnskólum víðs vegar um landið. Niðurstöðurnar gefa innsýn í samskipti í grunnskólum sem snúa að dreifðri forystu, samvinnu, virkri þátttöku, hlustun, tengslum og vera góðar fyrirmyndir til að sýna nemendum virðingu, byggja upp jákvæða sjálfsmynd og auka trú þeirra á eigin getu. Niðurstöðurnar gefa vísbendingar um að áherslur í samskiptum sem komu fram endurspegli þjónandi forystu og má þar helst nefna einlæga hlustun, traust, virðingu, opin og heiðarleg samskipti og gildi teymisvinnu. Einnig kom fram í niðurstöðum það sem væri æskilegt að nemendur hefðu sem veganesti við lok grunnskólagöngu svo sem jákvæð sjálfsmynd, virðing fyrir sjálfum sér og öðrum og samskiptahæfni. Niðurstöður koma heim og saman við fyrri rannsóknir um gildi góðra samskipta og hugmyndafræði þjónandi forystu. Rannsóknin er framlag til þekkingar um samskipti í grunnskólum og um þjónandi forystu. Niðurstöðurnar geta nýst til að efla góð samskipti í grunnskólum. Lykilorð: samskipti, þjónandi forysta, skólar, stjórnendur, virðing
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sædís Guðmundsdóttir 1972-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/42571
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/42571