Back to results

Bifröst University

"Góð samskipti koma góðu í verk" Áhrif stjórnunaraðferða næsta yfirmanns á starfsánægju nýliða

Abstract

dc:description.abstract

Mannauðurinn er ein sú mikilvægasta auðlind sem hver skipulagsheild hefur á að skipa hverju sinni. Starfsánægja starfsmanna hefur jákvæð áhrif á starfsárangur og þar með framleiðni og árangur fyrirtækja. Fjölmargir þættir hafa áhrif á starfsánægju. Niðurstöður rannsóknar um áhrif stjórnunar og ólíkra stjórnunarkenninga á starfsánægju hafa greint niðurstöður um jákvæð tengsl. Aftur á móti hafa fáar rannsóknir rýnt í áhrif stjórnunar á starfsánægju út frá því á hvaða lífsskeiði starfsmaðurinn er staddur, þ.e. hvort hann teljist sem nýliði eða fullgildur starfsmaður. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna áhrif stjórnunaraðferða næsta yfirmanns á starfsánægju nýliða sem og áhrif umbreytingarstjórnunar á starfsánægju nýliða. Rannsóknarspurningar voru „Hvaða áhrif hefur stjórnunaraðferð næsta yfirmanns á starfsánægju nýliða?“ og „Hvaða áhrif hefur umbreytingarstjórnun á starfsánægju nýliða?“ Valin voru af hentugleika tvö fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Þátttakendur rannsóknar voru einstaklingar sem höfðu starfað hjá fyrirtækinu í 12 mánuði eða skemur. Til að svara rannsóknarspurningum rannsóknar var framkvæmd eigindleg hálf-opin viðtalsrannsókn. Í heildina voru tekin viðtöl við 12 einstaklinga. Niðurstöður rannsóknar gefa vísbendingar um að ef stjórnunaraðferð næsta yfirmanns einkennist af góðum samskiptum, sem bera megineinkenni skilnings og trausts. Jafnframt að hagsmunir og framkoma hans endurspegli háa tilfinningagreind þá hafi það jákvæð áhrif á starfsánægju nýliða. Eins sýna niðurstöður vísbendingar um að beri næsti yfirmaður hluta af einkennum umbreytingastjórnunar, þ.e. hugræn áhrif (e. idelized influence) og einstaklingsmiðuð tillitssemi (e. individual consideration), þá hafi hann jákvæð áhrif á starfsánægju nýliða.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Íris Birgisdóttir 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42567
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42567

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Íris Birgisdóttir 1980-. "Góð samskipti koma góðu í verk" Áhrif stjórnunaraðferða næsta yfirmanns á starfsánægju nýliða. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42567