Back to results

Bifröst University

Nýliðinn í gestamóttöku : hefur móttaka og þjálfun nýliða áhrif á starfsánægju?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar var að kanna það hvernig móttaka og þjálfun nýliða fer fram í gestamóttökum hjá hótelkeðju á Íslandi og hvort móttaka og þjálfun nýliða hafi áhrif á starfsánægju. Valin voru þrjú hótel sem starfa í sömu keðju en hvorki hótelin né keðjan verða nafngreind í þessari ritgerð. Þátttakendur rannsóknarinnar eru starfsmenn gestamóttöku þeirra þriggja hótela sem starfa innan keðjunnar og verða þau kölluð Hótel A, Hótel B og Hótel C. Til þess að ná fram settu markmiði rannsóknarinnar og svara rannsóknarspurningunum varð eigindleg viðtalsrannsókn fyrir valinu, tekin voru viðtöl við átta gestamóttökustarfsmenn. Með aukinni starfsánægju fækkar fjarvistum starfsmanna, frammistaða eykst og hún dregur úr starfsmannaveltu. Mannauðurinn er mikilvæg auðlind og hann ber að vernda. Því er mikilvægt að vel sé staðið að móttöku og þjálfun nýliða. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að móttökuferli hótelanna sé til fyrirmyndar á prenti en það vantar þó að samræma ferlið á milli hótela og starfsmanna. Flestir viðmælendur voru ánægðir með þær móttökur sem þeir fengu frá yfirmönnum sínum og samstarfsfélögum en munur er á frásögnum þeirra hvort þeir hafi fengið formlegar móttökur í formi nýliðakynningar og hvenær hún átti sér stað. Viðmælendur voru flestir sammála um það að þörf er á verulegum úrbótum er kemur að þjálfun nýliða. Munur var á milli viðmælenda hvernig þeir lýstu þjálfun sinni og almennt var mikil óánægja með þá þjálfun sem þeir hlutu. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að þjálfunin sem nýir starfsmenn hljóta sé ómarkviss og misjöfn eftir því hvaða starfsmaður tekur að sér að þjálfa nýliðann.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eyrún Inga Gunnarsdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36473
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36473

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eyrún Inga Gunnarsdóttir 1990-. Nýliðinn í gestamóttöku : hefur móttaka og þjálfun nýliða áhrif á starfsánægju?. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36473