Back to results

Bifröst University

Viska, viðhorf, vinnubrögð : aukinn starfsþroski með aðferðum samræðufélagsins og þjónandi forystu

Abstract

dc:description.abstract

Margvísleg rök hníga að því að persónuleg viðhorf hafi afar mikið að segja um hvernig fagmennska birtist og hafi einnig mótandi áhrif á starfskenningu og þar með val á vinnubrögðum og starfsaðferðum. Rannsóknir hafa sýnt að slíkar rótgrónar tilhneigingar geti verið áhrifaríkari en sá formlegi lærdómur sem átt hefur sér stað. Því er afar áríðandi að ígrunda þennan þátt hugsunarinnar til að þekking sem aflað er með öðrum og vísindalegri hætti birtist í raun í athöfnum en verði ekki bara orðin tóm. Af þessu leiðir að eitt af mikilvægustu og um leið mest krefjandi hlutverkum leiðtogans er að veita samverkamönnum sínum tækifæri til að ígrunda eigin viðhorf með markvissum hætti. Kenningin sem ég set fram í þessari ritgerð og færi rök fyrir er að hinn þjónandi leiðtogi hafi flest til brunns að bera til að gera honum kleift að nálgst þetta verkefni af umhyggju, alúð og virðingu, sem er slíkri sjálfsíhugun nauðsynleg. Skólastjórnandi sem ræktar með sér eiginleika þjónandi leiðtoga er þannig einkar vel til þess fallinn að leiða kennara sína í hinu viðkvæma ferli sem ígrundun eigin viðhorfa svo sannarlega er. Eins og áður sagði, hefur allmikið verið skrifað um áhrif viðhorfa á vinnubrögð en minna hefur hins vegar farið fyrir tillögum um hvernig hægt er að vinna markvisst að rannsókn á eigin viðhorfum, hjálplegum sem óhjálplegum, sem dæmi; viðhorf til bernskunnar, barna og námstækifæra þeirra. Ég færi rök fyrir því að aðferðir heimspekisamræðu með börnum (P4C) og ekki hvað síst hins rannsakandi samræðufélags (CoPI) geti fyllt í þetta skarð og séu hvað árangursríkastar til að styðja við aukinn þroska og sameiginlega ígrundun í kennarahópi, sé hún leidd af kærleiksríkum leiðtoga. Samræðan stuðlar að agaðri hugsun þátttakenda á jafnræðisgrunni og veitir viðfangsefninu nauðsynlegt utanumhald. Aðferð hins rannsakandi samræðufélags er einnig árangursrík leið að auknum þroska á vaxtarbraut hins þjónandi leiðtoga í slíkri víxlverkan við samkennara. Að lokum set ég fram og flokka sameiginlega þætti hins þjónandi leiðtoga og handleiðara rannsakandi samræðufélags. Þættirnir fléttast saman og byggja hver á öðrum og eru eftirfarandi: 1) Áhugi, fróðleiksfýsn og forvitni; 2) Hlusta af auðmýkt, einlægni og ígrundun; 3) Hugrekki; 4) Umburðarlyndi og virðing fyrir skoðunum annarra; 5) Umhyggja, kærleikur og samkennd; 6) Biðlund, þolinmæði og seigla; 7) Næring, efling, stuðningur og hvatning. Það er von mín að verkið geti vakið áhuga með skólafólki og geti á þann hátt gagnast þeim við að tileinka sér aðferðir samræðunnar og eiginleika hins þjónandi leiðtoga, áleiðis til aukins starfsþroska – skólastarfinu, skólasamfélaginu og ekki síst börnunum okkar til farsældar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Margrét Jensína Þorvaldsdóttir 1960-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 9

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31890
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31890

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Margrét Jensína Þorvaldsdóttir 1960-. Viska, viðhorf, vinnubrögð : aukinn starfsþroski með aðferðum samræðufélagsins og þjónandi forystu. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31890