Back to results

Bifröst University

Vinnustaðamenning Tryggingastofnunar

Abstract

dc:description.abstract

Vinnustaðamenning (e. Corporate Culture/ Organizational Culture) er almennt skilgreind sem þær undirliggjandi hugmyndir og gildi sem eru ríkjandi í hugum starfsfólks og stýra og leiðbeina hegðun þess. Þessi menning er ólík á milli fyrirtækja og jafnvel á milli deilda innan sama fyrirtækis. Í þessari ritgerð er farið yfir helstu skilgreiningar og kenningar um vinnustaðamenningu og kynnt er megindleg rannsókn sem gerð var á vinnustaðamenningu Tryggingastofnunar ásamt niðurstöðum hennar. Markmið rannsóknarinnar var að kortleggja víddir menningarinnar og draga fram styrkleika hennar og veikleika. Með því að gefa stjórnendum yfirsýn yfir ríkjandi menningu hafa þeir fengið í hendurnar upplýsingar sem hægt er að nota sem stjórnunartól við breytingar á áherslum vinnustaðamenningar og þar með tækifæri til að vinna að úrbótum þar sem þeirra er þörf. Spurningalisti Denison ( Denison Organizational Culture Survey, DOCS) var lagður fyrir starfsmenn Tryggingastofnunar í mars 2016. Helstu niðurstöður voru þær að allar yfirvíddir menningarinnar mældust á aðgerðabili, helstu styrkleika var að finna í skýrri stefnu en veikleikana var helst að finna í undirvíddunum lærdómi, framtíðarsýn, þróun mannauðs og hæfni og samhæfingu og samþættingu. Gerður var samanburður á meðaleinkunnum á milli starfssviða þátttakenda og kom í ljós mikill munur á viðhorfi starfsfólks til menningar eftir starfssviðum. Einnig sýndu niðurstöður að stjórnendur hafa aðra sýn á menningu stofnunarinnar en starfsfólk en samkvæmt niðurstöðum stjórnenda er stór hluti undirvídda á starfhæfu bili eða styrkleikabili.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ásta Björk Jökulsdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásta Björk Jökulsdóttir 1981-. Vinnustaðamenning Tryggingastofnunar.