Back to results

University of Iceland

Íðorðastarf og þýðingar: Sérstaða Hugtakasafns þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins

Abstract

dc:description.abstract

Umfjöllunarefni þessarar ritgerðar er Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins en það er 35 ára á þessu ári. Þetta er eitt stærsta íðorðasafn landsins sem inniheldur yfir 83 000 tvímála færslur á ensku og íslensku. Það á upphaf sitt í þýðingunni á EES-samningnum og EES-gerðum tengdum honum. Þetta efni hefur ekki verið skoðað skipulega áður þótt drepið hafi verið á einstaka þætti þess í ýmsum umfjöllunum. Hér er farið yfir sögu safnsins og ástæðu þess að söfnun íðorða í það hófst. Einnig er rýnt í ákveðna þætti í starfsemi þess. Í tengslum við Hugtakasafnið er fjallað sérstaklega um vensl íðorðafræði og þýðingafræði. Fræðilegur grunnur þessara greina er gaumgæfður og einnig hagnýt hlið þeirra, þ.e. þýðingar og íðorðastarf. Það er aðallega við þýðingar á nytjatexta sem þörf er á íðorðavinnu og því er fjallað um kenningar um texta á sérhæfðum sviðum. Þar sem EES-samningurinn og gerðir sem falla undir hann eru lagatextar er litið sérstaklega til textagreiningar, meðal annars með tilliti til lagamáls. Þá er skoðað hvernig íðorðastarfið og þýðingarnar tengjast málstefnu, bæði á Íslandi og í Evrópusambandinu. Þeir þættir sem teknir eru til skoðunar varðandi Hugtakasafnið eru upphaf þess og þróun, meðal annars uppbygging, skipulag, tæknimál og birting þess á netinu. Þá er skoðað íðorðastarfið er lýtur að samstarfi við sérfræðinga og leit að jafnheitum fyrir sérhæfðan orðaforða í frumtextum. Einnig er safnið skoðað út frá kenningum um þýðingamiðuð íðorðasöfn. Að lokum er fjallað um þætti varðandi gæðastýringu safnsins, það er verklag og mikilvægi endurskoðunar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnhildur Stefánsdóttir 1962-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/51440
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/51440

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnhildur Stefánsdóttir 1962-. Íðorðastarf og þýðingar: Sérstaða Hugtakasafns þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins. 2025. https://hdl.handle.net/1946/51440