University of Iceland
Félagsfærniborðspilið F : skemmtileg leið til að efla félagsfærni ungmenna
Abstract
dc:description.abstractFélagsfærni gegnir óhjákvæmilegu hlutverki í samfélagsþátttöku ásamt því að vera ein af undirstöðum vellíðanar og velgengni fólks. Því er mikilvægt að ungmenni geti átt í jákvæðum, uppbyggilegum samskiptum við aðra og njóti velgengni í félagslegum aðstæðum. Tilgangur verkefnisins er að búa til félagsfærniborðspil með því markmiði að auka við aðgengilegt, einfalt og skemmtilegt efni til að efla félagsfærni ungmenna. Rannsóknir hafa sýnt fram á aukna samskiptafærni og námsárangur ungmenna með félagsfærniþjálfun auk þess að ungmenni eru þá frekar í stakk búin til að leysa úr ágreiningi. Leikir og spil eru í eðli sínu félagslegir og reyna m.a. á samskiptafærni og tilfinningastjórn, því getur borðspil verið ákjósanleg og árangursrík aðferð til að efla félagsfærni ungmenna. Þegar skoðuð eru þau spil sem eru á markaði sérstaklega ætluð félagsfærniþjálfun ungmenna má sjá að borðspil sem þetta er ekki auðfundið. Spurningaspjöld spilsins voru samin með fræðigreinar og rannsóknir á félagsfærniþjálfun ungmenna til hliðsjónar. Ásamt alls sem þarf til spilunar fylgir spilinu myndrænt tilfinningaspjald og hugmyndir eða kveikjur að svörum við spurningum í spilinu sem gætu reynst krefjandi. Borðspilið gagnast til notkunar í grunn- og framhaldsskólum, í allskyns félagsstarfi og á heimilum ungmenna. Félagsfærniborðspilið F ætti því að geta verið aðgengilegt verkfæri til að efla félagsfærni ungmenna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Fanney Dröfn Magnadóttir 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/45579
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/45579