Back to results

University of Iceland

„Er nokkuð glúten í þessu?“: Lífið með selíaksjúkdómnum á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er varpað þjóðfræðilegu ljósi á einstaklinga með sjálfsofnæmissjúkdóminn selíak og rannsakað hvernig þeim tekst að takast á við nýja tilveru þar sem ótti og áhætta í daglegu lífi er staðreynd. Einnig er skoðað hvaða félagslegu og andlegu áhrif það hefur að geta ekki lengur heilsu sinnar vegna, deilt hefðbundnum mat, eins og brauði, með fólkinu í kringum sig án þess að verða veik. Eins er kannað hvernig fólk sem hefur fengið selíakgreiningu reynir að fóta sig innan ákveðinna viðmiða samfélagsins og tekst á við tilveru sem er á skjön við þá siði og venjur hversdagslífsins sem þau áður voru vön. Til þess að nálgast viðfangsefnið nýti ég mér eigindlega aðferðafræði í formi viðtala til að komast nær persónulegri upplifun viðmælenda minna sem byggist að mestu á tilfinningum sem getur reynst erfitt að færa í orð. Ég mun leitast við að tengja efnið við kenningar þjóðfræðinnar svo sem borðhald/samkennd (e. commensality), jaðarástand (e. liminality), líkömnun (e. embodiment) og tilfinningar (e. emotions). Rannsóknin leiðir í ljós að einstaklingar með selíak upplifa sig töluvert utan samfélagsins og þurfa að takast á við ýmsar áskoranir í sínu daglega lífi. Þau þurfa að leggja allt sitt traust í hendur þeirra sem bæði framleiða matinn og einnig þeirra sem matreiða hann. Það er því greinilegt að það að greinast með selíak, hefur merkjanleg áhrif á líf þeirra og stöðu innan samfélagsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gerða Theodóra Pálsdóttir 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/39832
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/39832

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Gerða Theodóra Pálsdóttir 1969-. „Er nokkuð glúten í þessu?“: Lífið með selíaksjúkdómnum á Íslandi. 2021. http://hdl.handle.net/1946/39832