Global ETD Search
Search theses and dissertations gathered from participating repositories worldwide. Every result links back to the library that holds it. No account is needed.
Results
Showing 1 to 15 of 15 for “"Þjóðfræði"”.
-
„Það var verið að kenna okkur að vera góðar eiginkonur og húsmæður“: Upplifun kvenna á Kvennaskólanum á Blönduósi
Í þessari BA-ritgerð í þjóðfræði er fjallað um samfélagið sem myndaðist á Kvennaskólanum á Blönduósi á sjöunda áratug síðustu aldar. Rannsóknin byggir á eigindlegum, hálfopnum viðtölum við fjórar konur sem stunduðu nám við Kvennaskólann á árunum 1960-1965. Þar sem lítið er til af rituðum heimildum …
-
„Er nokkuð glúten í þessu?“: Lífið með selíaksjúkdómnum á Íslandi
Í þessari ritgerð er varpað þjóðfræðilegu ljósi á einstaklinga með sjálfsofnæmissjúkdóminn selíak og rannsakað hvernig þeim tekst að takast á við nýja tilveru þar sem ótti og áhætta í daglegu lífi er staðreynd. Einnig er skoðað hvaða félagslegu og andlegu áhrif það hefur að geta ekki lengur heilsu …
-
Óperan og „að fara í óperuna“ Þjóðfræðileg greining á hefðinni, sviðsetning sjálfsmynda í ljósi helgiathafnarinnar og staða óperunnar í samtímanum.
Óperan er ekki þjóðfræðiefni sem hægt er að afmarka með skýrum hætti í eitt skipti fyrir öll. Hún er samgróin sögu Vesturlanda og hefur margþætt menningar- og félagslegt gildi fyrir marga hópa. Áhrifa hennar gætir víða í arkitektúr, bókmenntum og dægurmenningu svo fátt eitt sé nefnt. Í þessari …
-
Mórar og skottur: Ættardraugar í þjóðsagnasöfnum
Þessi ritgerð skoðar sagnir af íslensku ættardraugunum mórum og skottum eins og þær koma fyrir í þjóðsagnasöfnum, aðallega Íslenzkum þjóðsögum og ævintýrum Jóns Árnasonar. Fyrst er hugtakið sögn skoðað og það skilgreint með tilliti til flokkunnar, sagnafólks, hlutverks og tengsla við þjóðtrú. Næst …
-
„Fólk heldur oft að við séum bara hippar úti á túni, en þetta er blóð, sviti og tár.“ Þróun grasalækningahefðar á Íslandi og áhrif stofnanavæðingar á alþýðuhefð
Í þessari 60 eininga meistaraprófsritgerð er grasalækningahefð á Íslandi fyrr og nú tekin til rannsóknar. Leitast er við að varpa ljósi á þá þróun sem hefur átt sér stað hvað varðar stöðu, aðferðir og hugmyndafræði grasalækna þvert á tíma og ekki síst stöðu grasalækninga í samtímanum. Meðal annars …
-
„Maður verður allavegana að mæta í hvítu í sitt eigið brúðkaup.“ Umfjöllun um brúðarklæðnað íslenskra kvenna í nútíð og fortíð
Brúðkaup er að margra mati ein stærsta hátíð mannsævinnar með öllum sínum hefðum og helgisiðum. Í þessari ritgerð verður stiklað á stóru yfir helstu brúðkaupshefðir okkar Íslendinga. Áhersla er lögð á brúðarklæðnað íslenskra kvenna og þróun hans í gegnum tíðina. Þá er átt við breytinguna sem varð …
-
„Almenningsgatan.“ Iðkun athugasemdakerfa
Nú í seinni tíð hefur tölvan og tölvutæknin hrundið af stað samskiptabyltingu sem hefur leitt til þess að tækifærum einstaklinga til að tjá sig á opinberum vettvangi hefur fjölgað til muna. Athugasemdakerfi fjölmiðlanna eru ein afurð þessa en þau gera einstaklingum kleift að setja fram skoðanir …
-
Matur er manns gaman: Sögur af matarboðum
Eftirfarandi ritgerð fjallar um matarboð, nánar tiltekið kvöldmatarboð. Athöfnin að borða saman þjónar bæði næringarfræðilegum og félagslegum tilgangi. Eftirminnilegar stundir í lífi fólks eru oft á tíðum tengdar mat og matarboðum. Hér verður varpað ljósi á hvers konar athöfn kvöldmatarboð eru, …
-
Frá Bjólfi til Batman: Drekabanar í gegnum tíðina
Eins og nafn ritgerðarinnar bendir til er drekabanaminnið útgangspunktur þessarar rannsóknar, en hugmyndin var sú að bera saman drekabana fortíðar og einn helsta drekabana nútímans; Batman. Markmiðið ritgerðarinnar er að athuga sameiginleg einkenni þeirra, minni og samfélagsleg skilaboð. …
-
Fjallagrös á 20. öld, grasaferðir og notkun
Ritgerðinni er ætlað að varpa ljósi á hvernig nýtingu fjallgrasa var háttað á 20. öld og þær breytingar sem urðu á notkun þeirra. Ritgerðin skiptist í þrjá kafla og í fyrsta kafla er farið yfir hverskonar jurtir fjallagrös eru og hvar þau helst vaxa. Í öðrum kafla sem er tvískiptur er reynt að sýna …
-
Grafið eftir gulli. Góði hirðirinn og endurnýting í íslensku samfélagi
Ritgerðin fjallar um Góða hirðinn og endurnýtingu í íslensku samfélagi. Í ritgerðinni er leitað svara við eftirfarandi spurningum: Hverjir versla í Góða hirðinum? Hvað kaupir fólk í Góða hirðinum? Hvers vegna verslar fólk í Góða hirðinum? Til þess að svara rannsóknar-spurningunum aflaði ég minna …
-
Húmor sem vopn almennings: Skopstælingar í kjölfar bankahrunsins á Íslandi
… á þennan hátt um netið er í mörgum tilfellum þjóðfræðiefni og er húmor aðeins lítið brot af því. Oft getur reynst erfitt að finna höfunda slíks efnis en á móti kemur að fleiri þora að senda það frá sér í skjóli nafnleyndar, til dæmis brandara sem innihalda ádeilu eða gagnrýni. Skopstælingar á …
-
Ull er gull: Lopapeysan við upphaf 21. aldar
Með þessari rannsókn er ætlunin að leita svara við því hvers vegna íslenska lopapeysan varð svo vinsæl í byrjun tuttugustu og fyrstu aldar sem raun ber vitni. Í því skyni voru tekin viðtöl við fimmtán Íslendinga sem koma að viðfangsefninu með mismunandi hætti. Greining á áherslum þeirra og …
-
Týnda samfélagið: Kárahnjúkar
Með þessari lokaskýrslu er ætlunin að ljá þöglum röddum þeirra sem störfuðu eða tengdust Kárahnjúkavirkjun á einn eða annan hátt hljóm. Markmiðið er að opna fólki sýn á ýmsar hliðar þessa samfélags sem ekki hafa allar verið sýnilegar utan þess. Í því skyni voru tekin átján viðtöl við tuttugu og tvo …
-
Brandþrúður Benónísdóttir. Austfirsk 19. aldar alþýðusagnakona
Austfirska alþýðusagnakonan Brandþrúður Benónísdóttir er uppi var á árunum 1831-1911 vekur athygli fyrir að vera ein örfárra kvenna sem er handritshöfundur eigin ævintýra og sagna í þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri. Engar samfelldar eða heillegar frásagnir af henni eru …