Abstract
dc:description.abstractTilgangur þessarar rannsóknar er að kanna hvernig kynfræðslu er háttað í grunnskólum og hvernig stuðning og fræðslu stúlkur sem verða ófrískar á grunnskólaaldri fá ef þær ákveða að ljúka meðgöngu. Leitað var svara við þessum spurningum hjá skólahjúkrunarfræðingum, lækni sem vinnur á heilsugæslustöð, lífsleiknikennurum, mæðrum sem eignuðust börn í grunnskóla og barnshafandi stúlkum í grunnskóla. Gagnanna var aflað með eigindlegum viðtölum við ellefu einstaklinga. Viðtölin voru greind með tilliti til þessara tveggja spurninga hér að ofan. Upplýsingar um tíðni kynsjúkdóma eru sláandi. Í niðurstöðum kemur fram að öllum viðmælendum þótti kynfræðslu vera ábótavant í grunnskólum auk þess sem lítill stuðningur virðist vera frá skólum til barnshafandi unglingsstúlkna.Viðmælendum okkar sem hafa verið ófrískar í grunnskóla og átt barnið á þeim tíma finnst kynfræðsla hafi verið af skornum skammti og situr hún ekki eftir í minningu þeirra. Fræðsla um meðgöngu, fæðingu og uppeldi barna, til barnshafandi unglingsstúlkna virðist ekki koma frá hendi skólans, hvorki frá kennurum né skólahjúkrunarfræðingum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Auður Björk Þórðardóttir
- Björk Pétursdóttir
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/3879
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/3879