Back to results

University of Iceland

Stjórnun viðskiptatengsla. Notkun CRM í markaðsstarfi Arion banka

Abstract

dc:description.abstract

Viðskiptavinir gera nú sífellt meiri kröfur til fyrirtækja. Það er því nauðsynlegt fyrir fyrirtæki sem vilja vera samkeppnishæf að mæta þeim kröfum. Customer relationship management eða stjórnun viðskiptatengsla, hér eftir kallað CRM, er kerfi sem sífellt fleiri fyrirtæki eru farin að nýta sér á undanförnum árum. Kerfið heldur utan um mikið magn af gögnum sem hjálpar fyrirtækjum að verða viðskiptavinamiðaðri. Möguleikar CRM eru margir, meðal annars í markaðssetningu, sölu og þjónustu. Tilgangur þessa verkefnis er að kanna með hvaða hætti Arion banki nýtir sér CRM í markaðssetningu og hvort það hafi borið árangur. Í fyrri hluta verkefnisins er hugmyndafræði CRM sem og notkunarmöguleikar kerfisins skoðaðir. Auk þess sem fjallað verður um mikilvæga þætti í innleiðingu þess og þann ávinning sem bæði fyrirtækin sjálf sem og viðskiptavinir þess hljóta af notkun CRM. Að lokum verður farið yfir hvernig Arion banki nýtir og stefnir á að nýta sér CRM í markaðslegum tilgangi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Berglind Jónsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32992
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32992

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Berglind Jónsdóttir 1993-. Stjórnun viðskiptatengsla. Notkun CRM í markaðsstarfi Arion banka. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32992