Back to results

University of Iceland

Að eiga eða leigja?

Abstract

dc:description.abstract

Því hefur verið haldið fram að á Íslandi ríki séreignastefna enda hefur leigumarkaður hérlendis löngum verið smár í sníðum. Niðurstöður kannana sem gerðar hafa verið um stöðuna á leigumarkaði hafa þá leitt það í ljós að eftirsóknarverðarar virðist vera að eiga eigið húsnæði fremur en að leigja. Gögn Hagstofunnar benda einnig til þess að fasteignir séu stærstur hluti einkasparnaðar landsmanna, en árið 2016 voru 77% eiginfjár heimilanna bundinn í fasteign. Þetta brýtur gegn þeirri skynsemi að ekki skuli setja öll eggin í sömu körfuna, enda feli fjárfesting í fasteign í sér áhættu eins og hver önnur fjáreign. Í ljósi þessa er spurningunni um það hvort það að vera leigjandi alla ævi sé vænlegur kostur eða ekki, og skipting leigjenda og eigenda á húsnæðismarkaði auk byrði húsnæðiskostnaðar hvors hóps reifuð. Í kjölfarið er farið yfir verðmyndun á fasteignamarkaði og skipting markaðarins í annars vegar íbúðamarkað og hins vegar eignamarkað og gerð grein fyrir Fjögurra fjórðunga líkani DiPasquale og Wheaton (e. Four Quadrant Model). Því næst er lagt upp einfalt samanburðardæmi milli þess að leigja og eiga og ljósi í kjölfarið varpað á muninn á eignaverðsáhættu og leiguverðsáhættu, annars vegar til skemmri tíma og hins vegar til lengri tíma litið. Að lokum er svokallað V/H hlutfall (verð/leigu hlutfall) þess að eiga og leigja fyrir alla landshluta og helstu þéttbýli hvers þeirra reiknað út. Niðurstöður greiningarinnar eru þær að til skemmri tíma getur það verið ákjósanalegra að leigja, en til lengri tíma litið muni borga sig að kaupa og búa í eigin húsnæði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ragnhildur Björnsdóttir 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/30270
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/30270

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ragnhildur Björnsdóttir 1994-. Að eiga eða leigja?. 2018. http://hdl.handle.net/1946/30270