Back to results

University of Iceland

„Alli skoðar heiminn“ : kennsluefni fyrir yngstu börnin

Abstract

dc:description.abstract

Greinargerð þessi ásamt kennslubók er lokaverkefni til meistaragráðu við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Greinargerðin er unnin í tengslum við kennslubókina „Alli skoðar heiminn“ - Kennsluefni fyrir yngstu börnin. Kennslubókin inniheldur þrjár litlar smásögur sem skrifaðar eru með það í huga að auka málþroska og málvitund yngstu barna leikskólans og koma til móts við margbreytileika barna þannig að hver og einn einstaklingur fái tækifæri til þess að blómstra. Ég vona að bókin eigi eftir að nýtast kennurum jafnt sem öðrum þeim sem vilja efla málþroska barna. Rannsóknir sýna að ánægja og þátttaka barna skiptir miklu máli þegar kemur að málskilningi og málvitund ungra barna og er því mikilvægt að velja lesefni sem hæfir þroska þeirra og getu. Fræðilegi hluti greinargerðarinnar byggir á kenningum fræðimanna þar sem barnið er í forgrunni, má þar nefna til sögunnar Bronfenbrenner, Dewey, Erikson, Piaget og Vygotsky. Skoðað er hvernig þroski og málvitund barna endurspeglast í mikilvægi barnabóka og ýtir undir heildstæða nálgun á gildi þess að lesa fyrir börn. Í greinargerðinni er fjallað um barnabókmenntir í víðu samhengi og saga þeirra stuttlega rakin. Höfundur veltir fyrir sér mikilvægi mynda í barnabókum og tengingu þeirra við ritaðan texta. Að auki verður rætt um mikilvægi þess að ala börn upp sem lestrarhesta. Í lok greinargerðar er sagt frá áherslum kennsluefnisins og komið með tillögur að hugmyndum um hvernig hægt er að nýta kennslubókina með margvíslegum hætti.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helen Long 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28515
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28515

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helen Long 1979-. „Alli skoðar heiminn“ : kennsluefni fyrir yngstu börnin. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28515