Abstract
dc:description.abstractMikið hefur verið fjallað um skapandi vinnubrögð og að kennarar hafi áhuga á að tileinka sér þau en þrátt fyrir það hefur það ekki endilega endurspeglast í daglegu skólastarfi. Álag á kennara er mikið en finna þarf leið til að hvetja nemendur og vekja áhuga þeirra. Meistaraverkefni þetta fjallar um leit mína að leiðum til að vinna á efsta stigi grunnskóla með myndlist sem mál, bæði sem tjáningu hugmynda í kennslu og samþættingu námsgreina. Tilgangur verkefnisins er að hvetja kennara til þess að fara út fyrir rammann og leita nýrra og fjölbreyttra leiða til þess að vinna starf sitt út frá þeim aðstæðum sem skapast dagsdaglega. Markmiðið er að sýna dæmi um hvernig nota megi myndlist sem mál til að efla skilning á nokkrum þáttum námskrár og ýta undir umræður um þá. Eftir að hafa ígrundað rannsóknir á sviði menntunnar og myndlistar og rætt við listamenn og verkefnastjóra fræðsludeilda listasafna, útbjó ég kennsluhefti fyrir nemendur á efsta stigi grunnskóla þar sem fjallað var um valin hugtök og unnin út frá myndlist. Ég ákvað að gera starfendarannsókn um ferlið og nýta aðferðir starfendarannsókna til að safna gögnum og vinna úr þeim. Aðalgögnum um ferlið var safnað í rannsóknardagbók þar sem ég skráði þau skref sem ég tók, hvernig gekk, vangaveltur mínar, riss og drög að teikningum sem áttu að fara í heftið. Einnig sendi ég eintök til ákveðna skóla og gerði spurningakönnun um viðhorf þeirra til heftisins. Að lokum, greindi ég svör þeirra, sem hjálpaði mér að bæta endanlega útgáfu heftisins. Rannsóknin sýnir mögulegar leiðir til að vinna þverfaglega með myndlist sem mál, þannig að nemendur fái tilfinningu fyrir tengingu ólíkra þátta í umhverfinu, bera þá saman og finna sameiginlega fleti sem geta leitt til nýrra lausna og sjónarmiða – allt til að opna hug þeirra. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að námskrár gefa kennurum mikið frelsi til þess að lesa úr þeim, túlka og vinna á skapandi hátt.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Halldór Sánchez 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28506
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28506