Back to results

University of Iceland

Notkun upplýsingatækni í kennslu : viðhorf og nýting kennara á upplýsingatækni í kennslu

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar ritgerðar er notkun samskipta og upplýsingatækni í íslenskukennslu í grunnskólum á Íslandi. Leitast er við að finna svör við því að hvaða marki kennarar telja að rafræn námsgögn hafi breytt og/eða bætt íslenskukennslu, að hvaða leyti íslenskukennurum finnist að almenn notkun nemenda á tækni kalli á breytingar í kennslu og hvernig notkun upplýsingatækni í íslenskutímum er háttað. Þegar við vorum í vettvangsnámi og sáum hversu mikið kennarar notuðu ipada og tölvur til að ná til nemenda vaknaði hjá okkur áhugi á því að vita meira um tækninotkun í kennslu og hvort og hvernig kennarar flétta tæknina inn í almenna kennslu hjá sér. Við fengum að nota hluta af gögnunum úr rannsóknarverkefninu Íslenska sem námsgrein og kennslutunga sem er samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri og fjallar meðal annars um notkun upplýsingatækni í grunnskólum, þ.e. viðtöl við tíu íslenskukennara í grunnskólum og u.þ.b. 120 vettvangslýsingar úr kennslustundum. Í ritgerðinni er farið yfir þann fræðilega bakgrunn sem fyrir liggur um almenna notkun upplýsingatækni í kennslu, skoðaðar ýmsar rannsóknir sem tengjast efninu og dregin saman svör við rannsóknarspurningunum. Niðurstöðurnar eru settar í samhengi við rannsóknir sem gerðar hafa verið um samspil upplýsingatækni og kennslu og hvernig nýta megi upplýsingatækni til að vekja áhuga nemenda. Meðal þess sem fram kemur er að kennararnir voru almennt sammála um að það væri jákvætt að blanda upplýsingatækni mun meira inn í íslenskukennsluna en nú er gert.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Heiðdís Júlíusdóttir 1991-
  • Lilja Guðmundsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26237
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26237

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Heiðdís Júlíusdóttir 1991-; Lilja Guðmundsdóttir 1991-. Notkun upplýsingatækni í kennslu : viðhorf og nýting kennara á upplýsingatækni í kennslu. 2016. http://hdl.handle.net/1946/26237