Back to results

University of Iceland

Gildi barnabóka fyrir málþroska leikskólabarna : kennsluverkefni um Skilaboðaskjóðuna.

Abstract

dc:description.abstract

Eftirfarandi verkefni er lokaverkefni til B.Ed.-gráðu í leikskólakennarafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Í verkefninu er reynt að svara því hvaða gildi lestur barnabóka hefur fyrir málþroska leikskólabarna. Í fyrsta hluta verkefnisins er fjallað um máltöku barna og mikilvægi talmálsins. Einnig er þar fjallað um mikilvægi málörvunar fyrir málþroska barna og hvað það er sem felst í málörvun. Auk þess er farið yfir þá þætti sem verið er að örva með málörvun. Lögð er sérstök áhersla á lestur barnabóka í þeim köflum. Í öðrum hluta verkefnisins er fjallað almennt um gildi barnabóka fyrir uppeldi og menntun ungra barna og hvaða áhrif lestur þeirra getur haft á málþroska leikskólabarna. Einnig er þar fjallað um árangursríkar leiðir til að lesa barnabækur í leikskóla og hvernig góður upplestur getur skilað góðum árangri. Í þriðja og síðasta hluta verkefnisins er greinagerð um bókina Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson og kennsluverkefni sem nýst getur fyrir málörvun elstu barna leikskólans. Markmið verkefnisins er að veita upplýsingar um hversu mikilvægur lestur barnabóka er fyrir málþroska ungra barna, jafnt og að gefa hugmyndir að því hvernig nýta má barnabók til að örva málþroska elstu barna leikskólans.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lísabet Ósk Jónsdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20699
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20699

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lísabet Ósk Jónsdóttir 1981-. Gildi barnabóka fyrir málþroska leikskólabarna : kennsluverkefni um Skilaboðaskjóðuna.. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20699