Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er fjallað um rafrænar ráðningar (e. online recruitment; e-recruitment). Með rafrænum ráðningum er átt við aðferð þar sem Internetið er notað í ráðningarferlinu. Til dæmis til að auglýsa lausar stöður, afla umsækjenda, veita upplýsingar um starfsemi fyrirtækja/stofnana, taka á móti umsóknum og svo framvegis. Settar eru fram eftirfarandi rannsóknarspurningar; a) hvert er umfang rafrænna ráðninga á Íslandi, b) hverjir eru kostir og gallar rafrænna ráðningaraðferða og c) hvað ber að hafa í huga þegar aðferðirnar eru notaðar? Við framkvæmd rannsóknar var notuð blönduð aðferð við gagnaöflun. Í fyrsta lagi var notuð megindleg aðferð þar sem fyrirtæki svöruðu spurningakönnun. Í úrtaki rannsóknar voru 104 fyrirtæki á lista Frjálsrar verslunar yfir 300 stærstu fyrirtækin á Íslandi árið 2014. Þátttökufyrirtæki voru 49 sem gerir svarhlutfall 47%. Í öðru lagi var notuð eigindleg aðferð þar sem fjórir sérfræðingar í ráðningum voru teknir í einstaklingsviðtöl. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að rúmlega 80% fyrirtækja hafa eigin ráðningarvefsíðu og rafrænan gagnagrunn fyrir umsækjendur. Þar að auki tekur mikill meirihluti fyrirtækja (70%) á móti rafrænum umsóknum í langflestum tilfellum. Notkun samfélagsmiðla hefur farið vaxandi undanfarin ár en sú ráðningaraðferð er þriðja árangursríkasta aðferðin við öflun umsækjenda samkvæmt niðurstöðum rannsóknar. Af þeim fyrirtækjum sem nota samfélagsmiðla í ráðningarferlinu voru Facebook (47%) og LinkedIn (33%) vinsælastir. Hátt hlutfall fyrirtækja (82%) taldi líklegt að þau myndu leggja meiri áherslu á eigin heimasíðu varðandi ráðningar næstu tveimur til þremur árum. Hvað varðar helstu kosti og galla rafrænna ráðninga þá töldu viðmælendur kostina fyrst og fremst felast í skilvirkni og vinnsluhraða. Gallar rafrænna ráðninga felast síðan aðallega í því að aðferðin geti mismunað eldra fólki sem skortir tölvukunnáttu. Að mati viðmælenda þurfa ráðningaraðilar helst að hafa í huga að gæta ekki hlutdrægni þegar þeir kanna nærmynd umsækjenda á Internetinu. Þar að auki þurfa rafræn umsóknarkerfi að vera notendavæn og einföld í notkun. Að lokum eru helstu annmarkar rannsóknar ræddir og fjallað um mögulegar framtíðarrannsóknir.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Árný Ósk Árnadóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/20318
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/20318