Back to results

University of Iceland

Það skiptir svo miklu máli hvernig þetta er gert fyrir námið : námsmat frá sjónarhóli nemenda.

Abstract

dc:description.abstract

Rannsóknin fjallar um námsmat og var ætlað að leita þekkingar og skilnings á reynslu nemenda af námsmati. Einnig var henni ætlað að veita upplýsingar um hvernig nemendur teldu námsmatið hafa nýst sér til árangurs í námi. Rannsóknin var eigindleg og byggðist á átta rýnihópaviðtölum þar sem rætt var við 48 nemendur, annars vegar úr 10. bekk í grunnskóla og hins vegar nemendur á fyrsta ári í framhaldskóla. Nemendur komu frá tveimur grunnskólum sem höfðu ólíka stefnu í námsmati. Rannsóknin sýndi að nemendur vilja leiðsagnarmat (e. formative assessment). Þeir vildu leiðbeinandi endurgjöf á vinnu sína, endurgjöf sem snýst um verkefni þeirra og vinnuferlið en þeir vildu ekki endurgjöf sem beinist að þeim sjálfum eins og klapp á kollinn. Rannsóknin sýndi að þátttakendum fannst að stór lokapróf og samræmd próf kölluðu á utanbókarlærdóm og segðu ekki mikið um þekkingu nemenda né færni. Nemendur sem rætt var við álitu að betra væri að meta stöðu þeirra í námi út frá stærri verkefnum, svo sem ritgerðum og fyrirlestrum sem nemendur halda sjálfir. Auk þess kom fram að þeir töldu að slík verkefni gætu aukið áhuga þeirra á námi og væru marktækur vitnisburður um hvernig námsmenn þeir væru. Lykilorð: Lokamat, reynsla nemenda.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ragnheiður Hermannsdóttir
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/2016
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/2016

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ragnheiður Hermannsdóttir. Það skiptir svo miklu máli hvernig þetta er gert fyrir námið : námsmat frá sjónarhóli nemenda.. 2008. http://hdl.handle.net/1946/2016