Back to results

University of Iceland

Vendinám : hvernig á að byrja?

Abstract

dc:description.abstract

Meginmarkmið ritgerðarinnar var að skoða kennsluaðferðina vendinám. Markmið var að athuga hvernig hún er uppbyggð, hvað kennarar þurfa að hafa í huga við notkun vendináms og hvernig íslenskir og erlendir kennarar nota hana. Rannsóknarspurningarnar voru: Hvað er vendinám? Hvernig er hún framkvæmd? Hvað ber að hafa í huga? Hvernig nota kennarar vendinám? Til að svara rannsóknarspurningunum ákvað höfundur að kanna viðhorf íslenskra kennara, sem nota vendinám í starfi sínu. Þátttakendur í rannsókninni voru 8 starfandi kennarar og auk þess var í rannsókninni fylgst með umræðuhópi 20 einstaklinga á twitter samskiptasíðunni á netinu, sem skiptust á skoðunum um vendinám. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru, að íslenskir kennarar eru áhugasamir um að búa til myndbönd fyrir nemendur sína. Nokkrir kennarar notuðu eingöngu vendinám og vildu ekki fara að kenna aftur samkvæmt öðrum kennsluaðferðum. Rannsóknin sýndi einnig að vendinám minnkaði agavandamál í bekkjum og nemendur höfðu mikinn áhuga á vendinámsaðferðinni og hvöttu aðra kennara til að nota hana í tímunum hjá sér. Niðurstöður sýndu jafnframt að nemendur mættu fyrr í tíma og fóru seinna úr tíma. Þessi kennsluaðferð hefur gefist vel sem kennsluform fyrir nemendur og kennara. Sumir foreldrar notuðu vendináms fyrirkomulagið til að aðstoða nemendur við heimanámið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sverrir Marinó Jónsson 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20084
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20084

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sverrir Marinó Jónsson 1981-. Vendinám : hvernig á að byrja?. 2014. http://hdl.handle.net/1946/20084