University of Iceland
Leiðin til Klapplands : hönnun og prófun námspilsins Klappland – pólítískur ómöguleikur
Abstract
dc:description.abstractÞessi ritgerð fjallar um þróun á námspilinu Klapplandi og prófun á því í spilun í framhaldsskólum. Klappland er hlutverka- og hermileikur þar sem líkt er eftir kosningum og stjórnarmyndun í ímynduðu landi. Í ritgerðinni er fjallað um fræðilegar kenningar um námspil og uppbyggingu þeirra. Tekin eru til umræðu sjónarmið úr kennslufræðum og notkun á spilum í kennslu sett í samhengi við þau. Grunnþættir og lykilhæfni úr Aðalnámskrá framhaldsskóla eru rædd og spilið tengt þeim, einkum lýðræði, sköpun og læsi. Klapplandi er svo lýst ítarlega og hver þáttur spilsins settur í fræðilegt samhengi eftir því sem hægt er og settar fram hugmyndir um notkun þess í kennslu ólíkra námsgreina. Rannsóknin í verkefninu er fólgið í tilraunakennslu þar sem spilið var prófað með nemendahópum í þremur framhaldsskólum. Aðferðafræði rannsóknarinnar var af meiði starfendarannsókna, tilviksrannsókna og sviðslistafræða. Niðurstöður benda til að nemendur séu virkir í spilinu, spilið virki sköpunargáfu þeirra, styrki þá félagslega og veiti þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum. Ekki er hægt að áætla af niðurstöðum hversu mikla fagþekkingu nemendur tileinka sér við spilun. Almenn niðurstaða er að notkun hlutverkaleikja, eins og þessa spils, sé vinnulag sem rannsóknir sýna að virki vel og gæti orðið mikilvægur þáttur í að auka fjölbreytni í fremur einsleitu námsumhverfi framhaldsskólans.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ármann Halldórsson 1969-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 9Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/19448
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/19448