University of Iceland
Hvað vantar? : könnun á þörf fyrir fræðslu fyrir foreldra barna á leikskólaaldri sem greinast með einhverfu
Abstract
dc:description.abstractVerkefnið samanstendur af fræðilegri ritgerð og fræðsluhefti fyrir foreldra ungra barna með einhverfu. Gengið var út frá þeirri hugmynd að þörf væri á fræðsluefni fyrir foreldra barna sem hefðu nýlega greinst með röskun á einhverfurófi. Byrjað var á að fræðast um þau einkenni sem ber hæst í fari barna með einhverfu. Síðan var upplýsinga aflað um fræðsluþörf foreldra. Í því skyni var rýnt í skriflegar heimildir um efnið og rætt við tvenna foreldra barna með einhverfu og tvo fagmenn á þessu sviði. Helstu niðurstöður voru að fagfólkið taldi að það vantaði fræðslurit sem kynnti aðferðir til að örva þroska barnsins og svo þann rétt á þjónustu sem barnið og foreldrarnir ættu. Foreldrarnir sögðust aftur á móti helst þurfa á andlegum stuðningi að halda. Þessar misvísandi niðurstöður komu á óvart en sjónarmið beggja voru lögð til grundvallar við vinnslu verkefnisins. Í samræmi við þessar niðurstöður var farið í að afla frekari heimilda vegna gerðar fræðsluritsins sem er hluti verkefnisins. Í því er greint frá einkennum einhverfu, reynslu foreldra í kjölfar greiningar, þjónustu og réttindum, stuðningi og fræðslu fyrir foreldra og systkini barna með einhverfu og aðferðum við kennslu og uppeldi barna með einhverfu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Helga Elísabet Guðlaugsdóttir
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/1886
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/1886