University of Iceland
Áhugahvöt meðal nemenda sem hafa fengið kennslu samkvæmt aðferðinni Stærðfræði byggð á skilningi barna (CGI)
Abstract
dc:description.abstractÍ verkefninu er leitast við því að svara rannsóknarspurningunni ,,Hvers eðlis er áhugahvöt meðal nemenda sem hafa fengið kennslu samkvæmt aðferðinni Stærðfræði byggð á skilningi barna?“ Framkvæmd var tilviksrannsókn í Melaskóla hjá nemendum í 5. bekk. Bekkurinn er undir umsjón Kristjönu Skúladóttur og hefur hún tileinkað sér kennsluhætti í stærðfræði sem byggð er á skilningi barna. Hugsmíðihyggja hefur verið helsta uppspretta hugmynda um að nemendur eigi að læra stærðfræði með skilningi. Það er ábyrgð kennarans að leiða nemendur upp á æðri stig hugsunar þar sem þeir eru í aðalhlutverki og kennarinn skapar viðeigandi aðstæður til náms. Gengið er út frá sama útgangspunkti og nemendur vinna að verkefnum á eigin forsendum til þess að þroskast í námi. Til þess að svara rannsóknarspurningunni var sjónum fyrst og fremst beint að innri og ytri áhugahvöt nemenda og mikilvægi tungumálsins í stærðfræðinámi. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að nemendur sem iðka stærðfræði undir slíkri leiðsögn reynast vera jákvæðir gagnvart námsgreininni stærðfræði og námi í henni. Þeim virðist bæði þykja skemmtilegt og hvetjandi að glíma við námsefnið á sínum eigin forsendum þar sem stuðst er við fjölbreyttar kennsluaðferðir. Innri áhugahvöt virðist ríkjandi meðal nemenda sem hafa fengið slíka kennsluhætti. Niðurstöður tilviksrannsóknarinnar eru einnig í samræmi við þær rannsóknir sem áður hafa verið gerðar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Auður Böðvarsdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/16590
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/16590