Back to results

University of Iceland

Heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun: Áhrif íhlutunar í 4.-7.bekk í þremur grunnskólum vor 2012

Abstract

dc:description.abstract

Heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun (School Wide Positive Behavior Support, SWPBS) er hegðunarstjórnunarkerfi sem notað er í grunnskólum til að koma á jákvæðu andrúmslofti og aga í skólum. Upphaflega var PBS notað fyrir börn með þroskaraskanir en varð seinna meir úrræði fyrir allann skólann. Heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun er árangursprófað og byggir á því að stuðla að jákvæðu umhverfi í skóla með því draga úr óæskilegri hegðun, bæta samskipti nemenda og starfsfólks og auka almenna vellíðan innan skólans. Flestir skólar sem hafa innleitt PBS hafa sýnt fram á minnkun á óæskilegri hegðun og aukið eftirlit starfsmanna. Niðurstöðurnar sem hér birtast eru hluti af langtímarannsókn á árangri á Heildstæðum stuðningi við jákvæða hegðun í þrem grunnskólum í Reykjanesbæ. Markmið rannsóknar er að athuga hvort Heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun sé að skila tilætluðum árangri í hegðurnarstjórnun nemenda. Alls tóku 634 þátt í rannsókninni þar með talið starfsmenn og nemendur. Við framkvæmd rannsóknarinnar var notast við beinar áhorfsmælingar vorið 2012 á þriðja framkvæmdarári. Innleiðing Heildstæðs stuðnings hefur dregið úr óæsklegri hegðun og aukið virkt eftirlit starfsmanna. Niðurstöður eru svipaðar rannsóknum sem gerðar voru á árangri Heildstæðs stuðnings við jákvæða hegðun í 4.-7. bekk vorið 2010 og 2011.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Björnsdóttir Arnar 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13887
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13887

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Björnsdóttir Arnar 1979-. Heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun: Áhrif íhlutunar í 4.-7.bekk í þremur grunnskólum vor 2012. 2013. http://hdl.handle.net/1946/13887