Back to results

Reykjavík University

Hvernig meta íslenskir dómstólar frásögn barna sem sönnun í kynferðisbrotamálum? : rannsókn á dómum Landsréttar sem varða kynferðisbrot gegn börnum

Abstract

dc:description.abstract

Rannsókn á dómum Landsréttar sem varða kynferðisbrot gegn börnum Í þessari ML ritgerð er fjallað um hvernig íslenskir dómstólar meta frásagnir barna sem sönnun í kynferðisbrotamálum. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á vægi munnlegs framburðar barna við sönnunarmat og greina hvaða sjónarmið og þættir ráða mestu við mat dómstóla á trúverðugleika slíkra frásagna. Í upphafi ritgerðarinnar er gerð grein fyrir þeim lagaákvæðum er varða kynferðisbrot gegn börnum og þeirri sérstöku vernd sem börnum er tryggð, meðal annars í almennum hegningarlögum nr. 19/1940 og alþjóðasamningum. Því næst er gerð grein fyrir sönnunarmati og sönnunarkröfum í sakamálum, með sérstakri áherslu á kynferðisbrotamál gegn börnum. Í kjölfarið er varpað ljósi á þá togstreitu sem getur myndast milli þeirra sönnunarkrafna og verndarsjónarmiða barna sem brotaþola. Meginþungi ritgerðarinnar felst annars vegar í umfjöllun um mat dómstóla á trúverðugleika munnlegs framburðar og hins vegar í ítarlegri dómarannsókn á dómum Landsréttar um þá þætti sem hafa áhrif á framburð barna sem sönnunargagn í kynferðisbrotamálum. Helstu niðurstöður þessarar ritgerðar fela í sér að framburður barns getur haft verulegt vægi við sönnun í kynferðisbrotamálum. Það er einkenni slíkra mála að brot eiga sér að jafnaði stað í lokuðu rými án þess að vitni séu að þeim og er sönnunarstaðan því oft afar erfið. Dómstólar leggja ríka áherslu á að framburður barns sé stöðugur og fái stoð í öðrum gögnum máls. Það er líklegra að það leiði til sýknu ef slíka stoð skortir eða framburður telst óstöðugur og misvísandi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að mat á frásögn barna er lykilatriði við úrlausn kynferðisbrotamála og að dómstólar standa frammi fyrir því vandasama verkefni að vega og meta vernd brotaþola annars vegar og réttindi ákærða hins vegar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lucinda Hulda Fonseca 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53648
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53648

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lucinda Hulda Fonseca 1992-. Hvernig meta íslenskir dómstólar frásögn barna sem sönnun í kynferðisbrotamálum? : rannsókn á dómum Landsréttar sem varða kynferðisbrot gegn börnum. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53648