Abstract
dc:description.abstractHreyfing, leikur og útikennsla snýst um að styrkja þroska og nám leikskólabarna. Rannsóknir hafa sýnt að dagleg hreyfing undirstrikar jákvæð áhrif á líkamlegan og andlegan þroska barna. Útikennsla gerir börnunum kleift að kynnast náttúrunni með hreyfingu, skynjun og námi. Í þessari rannsókn er leitast eftir að skoða hvernig íþróttafræðingur getur náð betur til barna í gegnum útikennslu. Að baki liggur rannsóknarspurningin: Hvernig næ ég til barnanna? Notast var við eiginlegt rannsóknarsnið sem heitir sjálfsskoðun (e. Self-study) þar sem rannsakandi skoðar eigið starf með því að skipuleggja og framkvæma tvær útikennslustundir fyrir börn á aldrinum fimm til sex ára í leikskóla. Niðurstöður úr rannsókninni gáfu til kynna að það skiptir máli hvernig fyrirmæli koma fram, hvernig tengsl milli barnanna og hvernig sveigjanleiki kennslunnar er. Með auknu sjálfstrausti rannsakandans tengdist áhugi og virkni barna í útikennslu. Rannsóknin varpar ljósi á það lykilatriði að kennarar skoði eigin nálgun í kennslu með ráðleggingum frá öðrum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Anna Karólína Ingadóttir 2004-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53582
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53582