Reykjavík University
Gul stéttarfélög eru jafnan talin andstæð grundvallarhugmyndum félagafrelsis. Að hvaða marki endurspegla þau, ásamt öðrum atriðum á borð við forgangsréttarákvæði og íhlutun atvinnurekenda, kerfislægar áskoranir við að tryggja sjálfstæði stéttarfélaga samkvæmt alþjóðlegum vinnuréttarviðmiðum?
Abstract
dc:description.abstractSjálfstæði stéttarfélaga og vernd félagafrelsis eru grundvallarþættir vinnuréttar og lykilforsendur raunverulegrar hagsmunagæslu launafólks. Umfjöllun þessi beinist að svonefndum gulum stéttarfélögum og öðrum birtingarmyndum íhlutunar atvinnurekenda, með það að markmiði að varpa ljósi á þær kerfislægu áskoranir sem geta komið upp við að tryggja sjálfstæði stéttarfélaga samkvæmt alþjóðlegum vinnuréttarviðmiðum. Sérstök áhersla er lögð á samþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 87 um félagafrelsi og nr. 98 um réttinn til skipulagningar og kjarasamninga, ásamt þeirri túlkun sem þessar samþykktir hafa fengið í framkvæmd. Litið er til lagaramma, dómaframkvæmdar og úrlausna eftirlitsnefnda Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, einkum hvað varðar túlkun á sjálfstæði stéttarfélaga og bann við íhlutun atvinnurekenda. Athyglin beinist einkum að túlkun Félagafrelsisnefndarinnar og sérfræðinganefndarinnar á banninu við íhlutun atvinnurekenda og þeim kröfum sem gerðar eru til sjálfstæðis stéttarfélaga í reynd. Gul stéttarfélög eru tekin til skoðunar sem dæmigerð birtingarmynd slíkrar íhlutunar, en jafnframt er fjallað um önnur atriði sem geta haft sambærileg áhrif á sjálfstæði félaga, þar á meðal forgangsréttarákvæði og óbein afskipti atvinnurekenda af skipulagi og starfsemi stéttarfélaga. Umfjöllunin byggir einnig á samanburði milli íslensks vinnuréttar, bandarísks vinnuréttarkerfis og danskra vinnumarkaðsfyrirkomulags. Sá samanburður varpar ljósi á ólíkar leiðir til að bregðast við sömu grundvallaráskorunum, einkum hvað varðar mörk lögmæts samstarfs og ólögmætrar íhlutunar, og hvernig sjálfstæði stéttarfélaga er tryggt í framkvæmd. Niðurstöður umfjöllunarinnar benda til þess að formleg lagavernd félagafrelsis sé ekki nægjanleg ein og sér, heldur þurfi verndin að vera virk og efnisleg til að tryggja raunverulegt sjálfstæði stéttarfélaga.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sara Gunnarsdóttir 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52059
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52059