Back to results

Reykjavík University

Gul stéttarfélög eru jafnan talin andstæð grundvallarhugmyndum félagafrelsis. Að hvaða marki endurspegla þau, ásamt öðrum atriðum á borð við forgangsréttarákvæði og íhlutun atvinnurekenda, kerfislægar áskoranir við að tryggja sjálfstæði stéttarfélaga samkvæmt alþjóðlegum vinnuréttarviðmiðum?

Abstract

dc:description.abstract

Sjálfstæði stéttarfélaga og vernd félagafrelsis eru grundvallarþættir vinnuréttar og lykilforsendur raunverulegrar hagsmunagæslu launafólks. Umfjöllun þessi beinist að svonefndum gulum stéttarfélögum og öðrum birtingarmyndum íhlutunar atvinnurekenda, með það að markmiði að varpa ljósi á þær kerfislægu áskoranir sem geta komið upp við að tryggja sjálfstæði stéttarfélaga samkvæmt alþjóðlegum vinnuréttarviðmiðum. Sérstök áhersla er lögð á samþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 87 um félagafrelsi og nr. 98 um réttinn til skipulagningar og kjarasamninga, ásamt þeirri túlkun sem þessar samþykktir hafa fengið í framkvæmd. Litið er til lagaramma, dómaframkvæmdar og úrlausna eftirlitsnefnda Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, einkum hvað varðar túlkun á sjálfstæði stéttarfélaga og bann við íhlutun atvinnurekenda. Athyglin beinist einkum að túlkun Félagafrelsisnefndarinnar og sérfræðinganefndarinnar á banninu við íhlutun atvinnurekenda og þeim kröfum sem gerðar eru til sjálfstæðis stéttarfélaga í reynd. Gul stéttarfélög eru tekin til skoðunar sem dæmigerð birtingarmynd slíkrar íhlutunar, en jafnframt er fjallað um önnur atriði sem geta haft sambærileg áhrif á sjálfstæði félaga, þar á meðal forgangsréttarákvæði og óbein afskipti atvinnurekenda af skipulagi og starfsemi stéttarfélaga. Umfjöllunin byggir einnig á samanburði milli íslensks vinnuréttar, bandarísks vinnuréttarkerfis og danskra vinnumarkaðsfyrirkomulags. Sá samanburður varpar ljósi á ólíkar leiðir til að bregðast við sömu grundvallaráskorunum, einkum hvað varðar mörk lögmæts samstarfs og ólögmætrar íhlutunar, og hvernig sjálfstæði stéttarfélaga er tryggt í framkvæmd. Niðurstöður umfjöllunarinnar benda til þess að formleg lagavernd félagafrelsis sé ekki nægjanleg ein og sér, heldur þurfi verndin að vera virk og efnisleg til að tryggja raunverulegt sjálfstæði stéttarfélaga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sara Gunnarsdóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52059
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52059

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sara Gunnarsdóttir 1996-. Gul stéttarfélög eru jafnan talin andstæð grundvallarhugmyndum félagafrelsis. Að hvaða marki endurspegla þau, ásamt öðrum atriðum á borð við forgangsréttarákvæði og íhlutun atvinnurekenda, kerfislægar áskoranir við að tryggja sjálfstæði stéttarfélaga samkvæmt alþjóðlegum vinnuréttarviðmiðum?. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52059