Abstract
dc:description.abstractPeningaþvætti í viðskiptum með sýndareignir er ört vaxandi vandamál um heim allan en hingað til hefur umfjöllunarefnið tilheyrt ákveðnu lagalegu tómarúmi. Íslensk stjórnvöld hafa vakið athygli á því að slíkum viðskiptum geti fylgt mikil áhætta en slík umræða hefur einnig verið áberandi á alþjóðavettvangi. Meginviðfangsefni þessarar ritgerðar er að veita innsýn í þær lagalegu kröfur sem gerðar eru til þess að koma í veg fyrir peningaþvætti með sýndareignir með tilkomu nýrrar löggjafar Evrópusambandsins ásamt því að greina frá íslenskri og norskri löggjöf á sviði aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnunar hryðjuverka í viðskiptum með sýndareignir. Leitast verður eftir því að varpa ljósi á nýjar kröfur tilkynningarskyldra aðila í tengslum við eftirlit með peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og hvort löggjöfin sem heild sé þannig líkleg til árangurs í baráttunni gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Í niðurstöðu umfjöllunar kemur fram að skyldur tilkynningarskyldra aðila aukist til muna með tilkomu nýrrar löggjafar Evrópusambandsins. MiCA-reglugerðin markar með skýrum hætti hvað telst til sýndareigna og tiltekur hún mismunandi kröfur sem gerðar eru til þeirra aðila sem stunda viðskipti með mismunandi tegundir sýndareigna. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um upplýsingar sem fylgja skulu við millifærslu fjármuna og tiltekinna sýndareigna er ekki síður mikilvæg en segja má að hún gangi skrefinu lengra en MiCA-reglugerðin, í tengslum við peningaþvættisvarnir og varnir gegn fjármögnun hryðjuverka, enda markmið reglugerðarinnar að draga úr nafnleyndarvanda sýndareignaviðskipta með innleiðingu á ferðareglunni. Í ritgerðinni er komist að þeirri niðurstöðu að íslensk löggjöf, ein og sér, sé ólíkleg til þess að tryggja fullnægjandi varnir í baráttunni gegn peningaþvætti í viðskiptum með sýndareignir. Nýtt regluverk Evrópusambandsins sé nauðsynlegt til þess að tryggja fullnægjandi varnir í þeim efnum. Regluverkið í heild, m.t.t. íslenskra og evrópskra reglna, sé þannig líklegt til árangurs með auknu eftirliti með þeim aðilum sem stunda viðskipti með sýndareignir, beggja megin við samningsborðið.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Dóra Jóna Aðalsteinsdóttir 1999-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51074
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51074