Back to results

Reykjavík University

Úllen, dúllen doff og það varst þú : rannsókn um val einstaklinga í verkefnahópa

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangurinn með þessari ritgerð er að kanna hvernig staðið er að vali á einstaklingum í verkefnahópa. Kerzner (2009) talar um að eitt af lykilatriðum þess að verkefni heppnist vel er að réttum einstaklingum sé úthlutað til þess. Vegna þessa skiptir það sköpum hvernig staðið er að vali á einstaklingum í verkefnahópa. Framkvæmd var könnun sem send var á félagsmenn Verkefnastjórnunarfélags Íslands með það að markmiði að skoða hvernig er staðið að gangsetningu verkefnahópa. Í könnunni var leitast við að svara spurningum um hvernig staðið er að vali í verkefnahópa, hvaða eiginleikar skipta máli þegar einstaklingar eru valdir og hvort verkefnastjórar hafi vald til að velja einstaklinga í verkefnahópa sem þeir stjórna. Og að lokum hvort verkefnastjórar telji að „auðlindabanki“ muni hjálpa til við val í verkefnahópa og hvaða upplýsingar þeir vilja sjá í auðlindabankanum. Helstu niðurstöður eru að einungis helmingur þátttakenda hefur vald til að velja einstaklinga í verkefnahópa. Þátttakendum finnst mikilvægt að þekkja eða að það sé mælt með þeim einstaklingum sem þeir velja. Þeir eiginleikar sem þátttakendur telja að skipti mestu máli við valið eru; áhugi einstaklings á verkefninu, sérfræðiþekking, samskiptahæfileikar, almenn reynsla og persónuleiki. Að lokum telur tæplega helmingur að auðlindabanki myndi nýtast þeim við valið í verkefnahópa. Lykilorð: Verkefnastjórnun, verkefnastjóri, verkefanhópur, auðlindabanki

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingibjörg Elísabet Garðarsdóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16306
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16306

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingibjörg Elísabet Garðarsdóttir 1976-. Úllen, dúllen doff og það varst þú : rannsókn um val einstaklinga í verkefnahópa. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16306