Hólar University College
Þekkingarstjórnun í íslenskri ferðaþjónustu : "við verðum að vanda okkur"
Abstract
dc:description.abstractÞekking er ein af mikilvægustu auðlindum fyrirtækja. Þekkingarstjórnun lýtur að því að ekki sé verið að finna í sífellu upp hjólið. Þekkingarstjórnun er nýtt innan fyrirtækja til þess að móta, skrá og miðla þekkingu. Í þessari skýrslu er sagt frá verknámi á Reykjavík Recidence hótel sem staðsett er í miðborg Reykjavíkur. Verknámið var tvíþætt, annars vegar að kynnast fyrirtækjamenningu hótelsins og þar með nýliðaþjálfun. Hins vegar fólst það í að taka fyrstu skref í að innleiða þekkingarstjórnun hjá Reykjavík Residence hótel með því að móta innri vef; gagnabanka sem heldur utan um öll gögn, upplýsingamiðlun og þekkingu innan fyrirtækisins. Þegar skrif hófust á skýrslu þessari hófst skilgreiningarferlið og leitun að hugtaki yfir miðlægan, gagnvirkan þekkingarbanka. Hugtakið innri vefur varð fyrir valinu vegna þess að hugtakið er að vissu leyti opið líkt og innri vefurinn er og verður. Innri vefurinn er gagnvirkur og brotinn upp í flokka og undirflokka. Hann mun á komandi árum verða leiðarvísir að fjölmörgum verkefnum og verkferlum í öllum deildum hótelsins. Leitast er við að svara eftirfarandi spurningu: Er þekkingarstjórnun mikilvæg til að ná samkeppnisforskoti? Í ljós kom að þekkingarstjórnun er mikilvæg til að ná samkeppisforskoti. Höfundur vonast til að þessi lesning verði skemmtileg og lærdómsrík. Allra helst vona ég að innri vefurinn sem settur hefur verið upp muni gagnast umræddu hóteli vel til framtíðar. Lykilorð: Þekking, þekkingarstjórnun, þjónustugæði, fyrirtækjamenning, ferðaþjónusta.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Bergrós Guðbjartsdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/36328
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/36328