Back to results

Hólar University College

Er nám framreiðslumanna í takt við störf þeirra? : viðhorf nema og faglærðra framreiðslumanna

Abstract

dc:description.abstract

Þegar við ferðumst er ósk flestra að upplifa góða þjónustu og fagmennsku. Þjónustan getur verið á margan hátt, þar sem hún er óáþreifanleg og óefnisleg. Hún er framreidd um leið og hún er afgreidd. Við gerum okkur oft ekki grein fyrir góðri þjónustu fyrr en við upplifum hana. Stór partur af ferðalögum tengist hótelum og veitingahúsum og þar eru framreiðslumenn í fremstu víglínu. Hér er til rannsóknar hvort menntun framreiðslumanna á Íslandi sé í takt við starf þeirra. Tekin voru átta eigindleg viðtöl sem skiptust á milli fjögurra útskriftarnema og fjögurra starfandi faglærðra framreiðslumanna. Þessi úrtök voru valin með það í huga að fá sem heildstæðast yfirlit yfir ofangreint viðfangsefni. Fjöldi menntaðra framreiðslu- og matreiðslumanna hefur ekki verið í takti við aukinn ferðamannastraum til landsins. Vinnumarkaðurinn kallar á fagfólk á þessu sviði, en skortur á menntuðu framreiðslufólki þýðir að þeir sem eru með menntunina eru oftar en ekki fengnir í yfirmannastöður. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna mikið samræmi í svörum allra átta viðmælendanna; þeir óskuðu eftir ákveðnum breytingum sem tengjast námi þeirra og starfi. Því má draga þá ályktun að frekari rannsókna er þörf á þessu viðfangsefni. Fagmennska – Trúverðugleiki – Þjónustugæði – Menntun – Starfsþjálfun

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna Birna Þorsteinsdóttir 1972-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31331
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31331

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Birna Þorsteinsdóttir 1972-. Er nám framreiðslumanna í takt við störf þeirra? : viðhorf nema og faglærðra framreiðslumanna. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31331