Back to results

Bifröst University

Drepur skólakerfið sköpunargleðina?

Abstract

dc:description.abstract

Sköpun er ein af grunnstoðum menntunar samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla og lykilhæfni í samfélagi sem gerir sífellt meiri kröfur um gagnrýna hugsun, frumkvæði og nýsköpun. Þrátt fyrir skýr markmið opinberrar menntastefnu yfirvalda benda rannsóknir til þess að rými til sköpunar í skólum sé misjafnt og að áherslur námsmats og skipulag skólastarfs geti takmarkað möguleika nemenda til að vera skapandi. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort íslenska grunnskólakerfið sé að gera nóg til að rækta skapandi hugsun nemenda. Framkvæmd var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru sex hálfopin viðtöl við kennara í grunnskólum. Niðurstöður sýna að nemendur búa yfir sterkri, meðfæddri sköpunargáfu og blómstra þegar þeir fá rými til að vinna verkefni á skapandi hátt. Hins vegar kemur fram ósamræmi á milli stefnu og innleiðingar, þar sem sköpun í kennslu er gjarnan háð frumkvæði einstaka kennara frekar en kerfisbundnum viðmiðum. Kennarar greina frá hindrunum tengdum tímaskorti, námskrárviðmiðum og námsmati, sem leggja ríkari áherslur á staðlaðar niðurstöður en skapandi ferli. Þessar niðurstöður endurspegla bilið á milli stefnu og raunverulegs skólastarfs, sem fræðimenn kalla sköpunargjá. Rannsóknin gefur vísbendingar um að íslenskir grunnskólanemendur séu vissulega skapandi en að skólakerfið sé ekki að gera nóg til að markvisst taka utan um sköpun og örva skapandi hugsun. Einn kennari nefndi að nemendur séu skapandi þrátt fyrir skólakerfið en ekki vegna þess. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að efla stuðning við kennara, þróa námsmat sem tekur mið af skapandi skólastarfi og tryggir að það sé gildandi hluti í kennslu í öllum námsgreinum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ester Sara Ólafsdóttir Cummings 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53849
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53849

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ester Sara Ólafsdóttir Cummings 1995-. Drepur skólakerfið sköpunargleðina?. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53849