Back to results

Bifröst University

Forvarnir og leiðin frá veikindum til vinnu- Upplifun stjórnenda í félagsþjónustu af endurkomuferli starfsfólks eftir langtímaveikindi

Abstract

dc:description.abstract

Langtímaveikindi hafa aukist verulega á undanförnum árum, sem hefur í för með sér auknar kröfur til stjórnenda um markvissan stuðning við starfsfólk í veikindum og skipulagða endurkomu til vinnu. Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á upplifun stjórnenda í félagsþjónustu af áskorunum sem tengjast forvörnum, langtímaveikindum starfsfólks og endurkomu þess til vinnu, auk þess að greina hvaða þættir í starfsumhverfi og skipulagi hafa áhrif á viðbrögð þeirra. Beitt var eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem tekin voru hálfopin viðtöl við átta stjórnendur með mannaforráð innan sólarhringsbúsetuþjónustu fatlaðs fólks. Markmið viðtalanna var að fá fram dýpri skilning á reynslu og viðhorfum þátttakenda, með sérstakri áherslu á þær áskoranir sem þeir hafa mætt í starfi sínu. Gögnin voru greind með þemagreiningu til að draga fram helstu mynstur í svörum þátttakenda. Niðurstöður benda til þess að áskoranirnar séu margþættar og komi fram á mismunandi stigum ferlisins, þar sem togstreita myndast milli lagalegra krafna, rekstrarlegra sjónarmiða og velferðar starfsfólks. Helstu þemu tengdust skorti á markvissri fræðslu, óljósum samskiptaleiðum og áskorunum tengdum persónuvernd og þagnarskyldu. Niðurstöður benda jafnframt til þess að bæta megi ferlið með aukinni þjálfun stjórnenda, skýrari upplýsingagjöf og samræmdu verklagi við endurkomu til vinnu, sem gæti stuðlað að bættum starfsaðstæðum og auknum árangri í stjórnun langtímaveikinda. Lykilorð: Langtímaveikindi, forvarnir, endurkoma til vinnu, stjórnendur, togstreita.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ásta Hrönn Ingvarsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53782
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53782

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásta Hrönn Ingvarsdóttir 1984-. Forvarnir og leiðin frá veikindum til vinnu- Upplifun stjórnenda í félagsþjónustu af endurkomuferli starfsfólks eftir langtímaveikindi. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53782