Back to results

Bifröst University

Uppkaup fasteigna á hættusvæðum - Málsmeðferð og lagaheimildir samkvæmt lögum nr. 49/1997

Abstract

dc:description.abstract

Markmið ritgerðarinnar er að greina lagagrundvöll, stjórnsýslureglur og réttaráhrif uppkaupa fasteigna í kjölfar náttúruhamfara á Íslandi, samkvæmt lögum nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum. Kveikjan að ritgerðinni var framkvæmd uppkaupa eftir skriðuföllin á Seyðisfirði þann 18. desember 2020. Á síðustu áratugum urðu miklar náttúruhamfarir á Íslandi á Vestfjörðum 1994 - 1995, skriðuföllin á Seyðisfirði árið 2020 og jarðhræringarnar í Grindavík frá árinu 2023 sem ekki sér fyrir endann á, en í kjölfar þeirra voru sett sérstök lög nr. 16/2024 um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík. Rannsóknin leggur áherslu á tvo meginþætti, annars vegar hvaða lagaheimildir og stjórnsýslureglur gilda um uppkaupaferli samkvæmt 11. gr. laga nr. 49/1997 og hins vegar hversu samræmdrar eða ósamræmdrar verndar fasteignaeigendur njóta eftir ólíkum svæðum á grundvelli laga. Niðurstöður sýna að lagaheimildir og framkvæmd um uppkaup fasteigna vegna náttúruvár er ósamræmd og í veigamiklum atriðum ófyrirsjáanleg. Af dómum Héraðsdóms Vestfjarða, sem ekki var áfrýjað til Hæstaréttar, má leiða fordæmi um túlkun á kröfunni um „fullt verð“ samkvæmt 72. gr. stjskr., þar sem staðfest var að bætur verði að endurspegla raunverulegan kostnað við að koma eiganda í sambærilega stöðu og fyrir hamfarir. Heildarniðurstaðan er sú að misræmi er milli heimildarákvæða laga nr. 49/1997 og skylduákvæðis laga nr. 16/2024 sem leiðir til lagalegs ójafnræðis. Því er brýnt að endurskoða réttarreglur um náttúruhamfarir til að tryggja jafnræði, fyrirsjáanleika og vernd eignarréttar óháð búsetu eða tegund náttúruvár.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eygló Björg Jóhannsdóttir 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52129
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52129

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eygló Björg Jóhannsdóttir 1974-. Uppkaup fasteigna á hættusvæðum - Málsmeðferð og lagaheimildir samkvæmt lögum nr. 49/1997. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52129