Back to results

Bifröst University

Vistfræði og vistkerfi menningar og skapandi greina: Hvernig geta sjálfstæðar skipulagsheildir dafnað á Íslandi?

Abstract

dc:description.abstract

Rannsókn þessi fjallar um þrjár sjálfstæðar skipulagsheildir á sviði menningar og skapandi greina á Íslandi; Sköpunarmiðstöðina á Stöðvarfirði, Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda á Patreksfirði og Reykjavík Deathfest. Leitast er við að greina starfsemi þeirra út frá kenningum á sviði menningarstjórnunar og skipulagsheildafræða um vistfræði og vistkerfi menningar og skapandi greina (VVMS) og spurningunni um það hvað felist í því að dafna innan slíkra vistkerfa á Íslandi. Hugtökin vistkerfi og vistfræði hafa verið afar áberandi á undanförnum áratugum á þessum fræðasviðum. Það má meðal annars rekja til gagnrýni á þá ofuráherslu markaðsvæðingar innan menningarstarfsemi og hagræna mælikvarða í umfjöllun um hinar skapandi greinar. Aftur á móti hefur merking þessara lykilhugtaka verið nokkuð á reiki í fræðilegri umræðu, auk þess sem þau sækja hugmyndafræðilegt afl sitt að verulegu leyti til aðkallandi vistkerfisvandamála samtímans án þess að þeim sé endilega stillt upp á forsendum náttúruverndar eða loftslagsaðgerða. Rannsókninni er ekki einungis ætlað að skýra fræðilegan grundvöll þess sem kalla mætti vistfræði skapandi greina, og draga fram annmarka slíkra fræða, heldur jafnframt að sýna fram á möguleika þeirra í greiningu á einstökum skipulagsheildum og vistkerfum þeirra. Í því skyni voru framkvæmd eigindleg viðtöl við stjórnendur Sköpunarmiðstöðvarinnar, Skjaldborgar og Reykjavík Deathfest sem greind eru undir sjónarhorni VVMS og með sérstakri áherslu á hugtakið að dafna. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að: Í vistfræðihugsun felst öflugt tæki til að endurskilgreina virði menningarstarfsemi sem andsvar við ráðandi áherslu á hagfræðisjónarmið. Hins vegar er beiting náttúrufræðihugtaka á fræðasviðinu vandamál þar sem þörf er á auknum skilningi og samþættingu. Skammstöfunin VVMS er því lögð fram sem byrjunarreitur fyrir rannsóknir innan kenningaramma vistfræði og vistkerfa menningar og skapandi greina á Íslandi. Til eru margar leiðir fyrir sjálfstæðar skipulagsheildir innan menningar til að dafna. Þær þurfa meðal annars metnaðarfullt teymi og stjórnendur, húsakost sem styður við starfsemina, öflugt styrkja- og stoðkerfi, viðamikið tengslanet og uppbyggilegt samstarf við stjórnsýslu og yfirvöld. Þörf er á nánari rannsóknum á sjálfstæðum skipulagsheildum innan menningar til að skýra döfnunarhugtakið frekar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jón Haukur Unnarsson 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52097
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52097

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jón Haukur Unnarsson 1992-. Vistfræði og vistkerfi menningar og skapandi greina: Hvernig geta sjálfstæðar skipulagsheildir dafnað á Íslandi?. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52097