{"id":{"repo_id":"bifrost","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/52097"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/bifrost/oai:skemman.is:1946/52097","repository":{"repo_id":"bifrost","name":"Bifröst University","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Vistfræði og vistkerfi menningar og skapandi greina: Hvernig geta sjálfstæðar skipulagsheildir dafnað á Íslandi?","abstract":"Rannsókn þessi fjallar um þrjár sjálfstæðar skipulagsheildir á sviði menningar og skapandi greina á Íslandi; Sköpunarmiðstöðina á Stöðvarfirði, Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda á Patreksfirði og Reykjavík Deathfest. Leitast er við að greina starfsemi þeirra út frá kenningum á sviði menningarstjórnunar og skipulagsheildafræða um vistfræði og vistkerfi menningar og skapandi greina (VVMS) og spurningunni um það hvað felist í því að dafna innan slíkra vistkerfa á Íslandi. Hugtökin vistkerfi og vistfræði hafa verið afar áberandi á undanförnum áratugum á þessum fræðasviðum. Það má meðal annars rekja til gagnrýni á þá ofuráherslu markaðsvæðingar innan menningarstarfsemi og hagræna mælikvarða í umfjöllun um hinar skapandi greinar. Aftur á móti hefur merking þessara lykilhugtaka verið nokkuð á reiki í fræðilegri umræðu, auk þess sem þau sækja hugmyndafræðilegt afl sitt að verulegu leyti til aðkallandi vistkerfisvandamála samtímans án þess að þeim sé endilega stillt upp á forsendum náttúruverndar eða loftslagsaðgerða. Rannsókninni er ekki einungis ætlað að skýra fræðilegan grundvöll þess sem kalla mætti vistfræði skapandi greina, og draga fram annmarka slíkra fræða, heldur jafnframt að sýna fram á möguleika þeirra í greiningu á einstökum skipulagsheildum og vistkerfum þeirra. Í því skyni voru framkvæmd eigindleg viðtöl við stjórnendur Sköpunarmiðstöðvarinnar, Skjaldborgar og Reykjavík Deathfest sem greind eru undir sjónarhorni VVMS og með sérstakri áherslu á hugtakið að dafna. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að: Í vistfræðihugsun felst öflugt tæki til að endurskilgreina virði menningarstarfsemi sem andsvar við ráðandi áherslu á hagfræðisjónarmið. Hins vegar er beiting náttúrufræðihugtaka á fræðasviðinu vandamál þar sem þörf er á auknum skilningi og samþættingu. Skammstöfunin VVMS er því lögð fram sem byrjunarreitur fyrir rannsóknir innan kenningaramma vistfræði og vistkerfa menningar og skapandi greina á Íslandi. Til eru margar leiðir fyrir sjálfstæðar skipulagsheildir innan menningar til að dafna. Þær þurfa meðal annars metnaðarfullt teymi og stjórnendur, húsakost sem styður við starfsemina, öflugt styrkja- og stoðkerfi, viðamikið tengslanet og uppbyggilegt samstarf við stjórnsýslu og yfirvöld. Þörf er á nánari rannsóknum á sjálfstæðum skipulagsheildum innan menningar til að skýra döfnunarhugtakið frekar.","abstract_html":"Rannsókn þessi fjallar um þrjár sjálfstæðar skipulagsheildir á sviði menningar og skapandi greina á Íslandi; Sköpunarmiðstöðina á Stöðvarfirði, Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda á Patreksfirði og Reykjavík Deathfest. Leitast er við að greina starfsemi þeirra út frá kenningum á sviði menningarstjórnunar og skipulagsheildafræða um vistfræði og vistkerfi menningar og skapandi greina (VVMS) og spurningunni um það hvað felist í því að dafna innan slíkra vistkerfa á Íslandi. Hugtökin vistkerfi og vistfræði hafa verið afar áberandi á undanförnum áratugum á þessum fræðasviðum. Það má meðal annars rekja til gagnrýni á þá ofuráherslu markaðsvæðingar innan menningarstarfsemi og hagræna mælikvarða í umfjöllun um hinar skapandi greinar. Aftur á móti hefur merking þessara lykilhugtaka verið nokkuð á reiki í fræðilegri umræðu, auk þess sem þau sækja hugmyndafræðilegt afl sitt að verulegu leyti til aðkallandi vistkerfisvandamála samtímans án þess að þeim sé endilega stillt upp á forsendum náttúruverndar eða loftslagsaðgerða. Rannsókninni er ekki einungis ætlað að skýra fræðilegan grundvöll þess sem kalla mætti vistfræði skapandi greina, og draga fram annmarka slíkra fræða, heldur jafnframt að sýna fram á möguleika þeirra í greiningu á einstökum skipulagsheildum og vistkerfum þeirra. Í því skyni voru framkvæmd eigindleg viðtöl við stjórnendur Sköpunarmiðstöðvarinnar, Skjaldborgar og Reykjavík Deathfest sem greind eru undir sjónarhorni VVMS og með sérstakri áherslu á hugtakið að dafna. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að: Í vistfræðihugsun felst öflugt tæki til að endurskilgreina virði menningarstarfsemi sem andsvar við ráðandi áherslu á hagfræðisjónarmið. Hins vegar er beiting náttúrufræðihugtaka á fræðasviðinu vandamál þar sem þörf er á auknum skilningi og samþættingu. Skammstöfunin VVMS er því lögð fram sem byrjunarreitur fyrir rannsóknir innan kenningaramma vistfræði og vistkerfa menningar og skapandi greina á Íslandi. Til eru margar leiðir fyrir sjálfstæðar skipulagsheildir innan menningar til að dafna. Þær þurfa meðal annars metnaðarfullt teymi og stjórnendur, húsakost sem styður við starfsemina, öflugt styrkja- og stoðkerfi, viðamikið tengslanet og uppbyggilegt samstarf við stjórnsýslu og yfirvöld. Þörf er á nánari rannsóknum á sjálfstæðum skipulagsheildum innan menningar til að skýra döfnunarhugtakið frekar.","abstract_has_math":false,"creators":["Jón Haukur Unnarsson 1992-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskólinn á Bifröst"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2026,"date_issued":"2026-02-14T15:26:29Z","date_published":"2026-02-14T15:26:29Z","updated_at":"2026-07-27T18:57:09Z","subjects":["Skapandi atvinnugreinar","Dreifbýli","Skipulagsheildir","Menningarstjórnun"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"https://hdl.handle.net/1946/52097","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskólinn á Bifröst"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Jón Haukur Unnarsson 1992-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2026-02-14T15:26:25Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2026-02-14T15:26:25Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2026-02-14T15:26:29Z"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Skapandi atvinnugreinar","Dreifbýli","Skipulagsheildir","Menningarstjórnun"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["https://hdl.handle.net/1946/52097"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description","label":"Description","values":["Athugasemd: Ritgerð verði lokuð vegna rannsóknarhagsmuna. Höfundur og leiðbeinandi munu vinna áfram með rannsóknina og vinna að birtingu greina í tímaritum hér- og erlendis. Opinn aðgangur að meistaraverkefni er talinn geta spillt rannsóknarhagsmunum og veikt útgefnar greinar þegar þær verða birtar."]},{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Rannsókn þessi fjallar um þrjár sjálfstæðar skipulagsheildir á sviði menningar og skapandi greina á Íslandi; Sköpunarmiðstöðina á Stöðvarfirði, Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda á Patreksfirði og Reykjavík Deathfest. Leitast er við að greina starfsemi þeirra út frá kenningum á sviði menningarstjórnunar og skipulagsheildafræða um vistfræði og vistkerfi menningar og skapandi greina (VVMS) og spurningunni um það hvað felist í því að dafna innan slíkra vistkerfa á Íslandi. Hugtökin vistkerfi og vistfræði hafa verið afar áberandi á undanförnum áratugum á þessum fræðasviðum. Það má meðal annars rekja til gagnrýni á þá ofuráherslu markaðsvæðingar innan menningarstarfsemi og hagræna mælikvarða í umfjöllun um hinar skapandi greinar. Aftur á móti hefur merking þessara lykilhugtaka verið nokkuð á reiki í fræðilegri umræðu, auk þess sem þau sækja hugmyndafræðilegt afl sitt að verulegu leyti til aðkallandi vistkerfisvandamála samtímans án þess að þeim sé endilega stillt upp á forsendum náttúruverndar eða loftslagsaðgerða. Rannsókninni er ekki einungis ætlað að skýra fræðilegan grundvöll þess sem kalla mætti vistfræði skapandi greina, og draga fram annmarka slíkra fræða, heldur jafnframt að sýna fram á möguleika þeirra í greiningu á einstökum skipulagsheildum og vistkerfum þeirra. Í því skyni voru framkvæmd eigindleg viðtöl við stjórnendur Sköpunarmiðstöðvarinnar, Skjaldborgar og Reykjavík Deathfest sem greind eru undir sjónarhorni VVMS og með sérstakri áherslu á hugtakið að dafna. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að: Í vistfræðihugsun felst öflugt tæki til að endurskilgreina virði menningarstarfsemi sem andsvar við ráðandi áherslu á hagfræðisjónarmið. Hins vegar er beiting náttúrufræðihugtaka á fræðasviðinu vandamál þar sem þörf er á auknum skilningi og samþættingu. Skammstöfunin VVMS er því lögð fram sem byrjunarreitur fyrir rannsóknir innan kenningaramma vistfræði og vistkerfa menningar og skapandi greina á Íslandi. Til eru margar leiðir fyrir sjálfstæðar skipulagsheildir innan menningar til að dafna. Þær þurfa meðal annars metnaðarfullt teymi og stjórnendur, húsakost sem styður við starfsemina, öflugt styrkja- og stoðkerfi, viðamikið tengslanet og uppbyggilegt samstarf við stjórnsýslu og yfirvöld. Þörf er á nánari rannsóknum á sjálfstæðum skipulagsheildum innan menningar til að skýra döfnunarhugtakið frekar.","This study examines three independent organizations in the field of culture and the creative sector in Iceland: the Fish Factory in Stöðvarfjörður, Skjaldborg – Icelandic Documentary Film Festival in Patreksfjörður, and Reykjavík Deathfest. The aim is to analyze their activities through theories in cultural management and organizational studies concerning the cultural and creative ecologies and ecosystems (CCEE), and to explore what it means to flourish within such ecosystems in Iceland. The concepts of ecosystems and ecology have been highly prominent in these academic fields in recent decades. This can be traced, among other things, to criticism of the overwhelming emphasis on marketization within cultural activities and the use of economic metrics in discussions of the creative sector. However, the meaning of these key concepts has been somewhat uncertain in scholarly debate, and they draw much of their ideological force from the pressing ecological issues of our time without necessarily being framed in terms of nature conservation or climate action. The aim of the study is not only to clarify the theoretical foundations of what might be called the ecology of the creative sector and to highlight the shortcomings of such theories, but also to demonstrate its potential in analyzing individual organizations and their ecosystems. To this end, qualitative interviews were conducted with the managers of the Fish Factory, Skjaldborg, and Reykjavík Deathfest, which are analyzed from the perspective of CCEE (VVMS) with a particular emphasis on the concept of flourishing. The main findings of the thesis are that: Ecological thinking provides a powerful tool for redefining the value of cultural activities as a counterpoint to the dominant emphasis on economic perspectives. However, the use of concepts drawn from the natural sciences in this field presents challenges, as greater understanding and integration are needed. The abbreviation CCEE (VVMS) is therefore proposed as a starting point for research within the theoretical framework of the ecology and ecosystems of culture and the creative sector in Iceland. There are many ways for independent cultural organizations to flourish. They require, among other things, an ambitious team and leadership, facilities that support their activities, a robust system of grants and support, an extensive network of connections, and constructive collaboration with public administration and authorities. Further research into independent organizations in the cultural sector is needed to clarify the concept of flourishing more fully."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Vistfræði og vistkerfi menningar og skapandi greina: Hvernig geta sjálfstæðar skipulagsheildir dafnað á Íslandi?"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskólinn á Bifröst"],"dc:creator":["Jón Haukur Unnarsson 1992-"],"dc:date.accessioned":["2026-02-14T15:26:25Z"],"dc:date.available":["2026-02-14T15:26:25Z"],"dc:date.issued":["2026-02-14T15:26:29Z"],"dc:description":["Athugasemd: Ritgerð verði lokuð vegna rannsóknarhagsmuna. Höfundur og leiðbeinandi munu vinna áfram með rannsóknina og vinna að birtingu greina í tímaritum hér- og erlendis. Opinn aðgangur að meistaraverkefni er talinn geta spillt rannsóknarhagsmunum og veikt útgefnar greinar þegar þær verða birtar."],"dc:description.abstract":["Rannsókn þessi fjallar um þrjár sjálfstæðar skipulagsheildir á sviði menningar og skapandi greina á Íslandi; Sköpunarmiðstöðina á Stöðvarfirði, Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda á Patreksfirði og Reykjavík Deathfest. Leitast er við að greina starfsemi þeirra út frá kenningum á sviði menningarstjórnunar og skipulagsheildafræða um vistfræði og vistkerfi menningar og skapandi greina (VVMS) og spurningunni um það hvað felist í því að dafna innan slíkra vistkerfa á Íslandi. Hugtökin vistkerfi og vistfræði hafa verið afar áberandi á undanförnum áratugum á þessum fræðasviðum. Það má meðal annars rekja til gagnrýni á þá ofuráherslu markaðsvæðingar innan menningarstarfsemi og hagræna mælikvarða í umfjöllun um hinar skapandi greinar. Aftur á móti hefur merking þessara lykilhugtaka verið nokkuð á reiki í fræðilegri umræðu, auk þess sem þau sækja hugmyndafræðilegt afl sitt að verulegu leyti til aðkallandi vistkerfisvandamála samtímans án þess að þeim sé endilega stillt upp á forsendum náttúruverndar eða loftslagsaðgerða. Rannsókninni er ekki einungis ætlað að skýra fræðilegan grundvöll þess sem kalla mætti vistfræði skapandi greina, og draga fram annmarka slíkra fræða, heldur jafnframt að sýna fram á möguleika þeirra í greiningu á einstökum skipulagsheildum og vistkerfum þeirra. Í því skyni voru framkvæmd eigindleg viðtöl við stjórnendur Sköpunarmiðstöðvarinnar, Skjaldborgar og Reykjavík Deathfest sem greind eru undir sjónarhorni VVMS og með sérstakri áherslu á hugtakið að dafna. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að: Í vistfræðihugsun felst öflugt tæki til að endurskilgreina virði menningarstarfsemi sem andsvar við ráðandi áherslu á hagfræðisjónarmið. Hins vegar er beiting náttúrufræðihugtaka á fræðasviðinu vandamál þar sem þörf er á auknum skilningi og samþættingu. Skammstöfunin VVMS er því lögð fram sem byrjunarreitur fyrir rannsóknir innan kenningaramma vistfræði og vistkerfa menningar og skapandi greina á Íslandi. Til eru margar leiðir fyrir sjálfstæðar skipulagsheildir innan menningar til að dafna. Þær þurfa meðal annars metnaðarfullt teymi og stjórnendur, húsakost sem styður við starfsemina, öflugt styrkja- og stoðkerfi, viðamikið tengslanet og uppbyggilegt samstarf við stjórnsýslu og yfirvöld. Þörf er á nánari rannsóknum á sjálfstæðum skipulagsheildum innan menningar til að skýra döfnunarhugtakið frekar.","This study examines three independent organizations in the field of culture and the creative sector in Iceland: the Fish Factory in Stöðvarfjörður, Skjaldborg – Icelandic Documentary Film Festival in Patreksfjörður, and Reykjavík Deathfest. The aim is to analyze their activities through theories in cultural management and organizational studies concerning the cultural and creative ecologies and ecosystems (CCEE), and to explore what it means to flourish within such ecosystems in Iceland. The concepts of ecosystems and ecology have been highly prominent in these academic fields in recent decades. This can be traced, among other things, to criticism of the overwhelming emphasis on marketization within cultural activities and the use of economic metrics in discussions of the creative sector. However, the meaning of these key concepts has been somewhat uncertain in scholarly debate, and they draw much of their ideological force from the pressing ecological issues of our time without necessarily being framed in terms of nature conservation or climate action. The aim of the study is not only to clarify the theoretical foundations of what might be called the ecology of the creative sector and to highlight the shortcomings of such theories, but also to demonstrate its potential in analyzing individual organizations and their ecosystems. To this end, qualitative interviews were conducted with the managers of the Fish Factory, Skjaldborg, and Reykjavík Deathfest, which are analyzed from the perspective of CCEE (VVMS) with a particular emphasis on the concept of flourishing. The main findings of the thesis are that: Ecological thinking provides a powerful tool for redefining the value of cultural activities as a counterpoint to the dominant emphasis on economic perspectives. However, the use of concepts drawn from the natural sciences in this field presents challenges, as greater understanding and integration are needed. The abbreviation CCEE (VVMS) is therefore proposed as a starting point for research within the theoretical framework of the ecology and ecosystems of culture and the creative sector in Iceland. There are many ways for independent cultural organizations to flourish. They require, among other things, an ambitious team and leadership, facilities that support their activities, a robust system of grants and support, an extensive network of connections, and constructive collaboration with public administration and authorities. Further research into independent organizations in the cultural sector is needed to clarify the concept of flourishing more fully."],"dc:identifier.uri":["https://hdl.handle.net/1946/52097"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Skapandi atvinnugreinar","Dreifbýli","Skipulagsheildir","Menningarstjórnun"],"dc:title":["Vistfræði og vistkerfi menningar og skapandi greina: Hvernig geta sjálfstæðar skipulagsheildir dafnað á Íslandi?"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T18:57:09Z"}