Back to results

Bifröst University

Hvernig getur mannauðsstjórnun stuðlað að betri aðlögun erlends starfsfólks á íslenskum vinnumarkaði?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar var athuga hvað mannauðsstjórnendur geti gert til þess að stuðla að betri aðlögun erlends starfsfólks á íslenskum vinnumarkaði. Síðustu ár hefur útlendingum fjölgað gríðarlega hérlendis en einnig hefur mannauðsstjórnun þróast mikið og er orðin mikilvægur þáttur fyrirtækja. Að vera með fjölbreytt starfsfólk á vinnustað getur verið mjög krefjandi en einnig mjög skemmtilegt og gefandi. Það er gaman að kynnast mismunandi menningu og hefðum en einnig þarfnast það mikillar vinnu og þolinmæði. Fyrir erlenda starfsfólkið er þetta einnig mjög mikil áskorun; læra nýtt tungumál, kynnast íslensku vinnuumhverfi, vita öll réttindi og lög og kynnast nýju fólki. Gerðar voru tvenns konar rannsóknir, eigindleg og megindleg, rætt var við fimm stjórnendur, þrjá erlenda starfsmenn ásamt spurningarkönnun þar sem 74 erlendir starfsmenn tóku þátt. Allt var þetta nýtt til þess að skoða hvernig hægt er að aðstoða erlent starfsfólk við aðlögun hér á landi. Út frá niðurstöðum má sjá að tungumálið er mikilvægasti þáttur aðlögunar, það hjálpar erlendu fólki mjög mikið að skilja tungumálið hvort sem það er í vinnu eða daglegu lífi. Það var bæði talað mikið um íslenskunámskeið hjá mannauðsstjórunum sem og erlenda starfsfólkinu sjálfu. Starfsfólkið vill sjá fleiri fyrirtæki bjóða upp á námskeið á meðan stjórnendur vilja sjá betri þátttöku þegar námskeiðin eru í boði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Karolina Konieczna 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/51000
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/51000

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Karolina Konieczna 2000-. Hvernig getur mannauðsstjórnun stuðlað að betri aðlögun erlends starfsfólks á íslenskum vinnumarkaði?. 2025. https://hdl.handle.net/1946/51000